Náðu myndbandi af hreyfingu tungla Júpiters Samúel Karl Ólason skrifar 5. júlí 2016 11:15 Tölvuteiknuð mynd af Juno í nánd við Júpiter. Vísir/NASA
Geimfarið Juno er nú á sporbraut um plánetuna Júpiter en ferðalagið þangað hefur tekið tæp fimm ár. Markmið verkefnisins og Juno er að rannsaka uppruna og þróun reikistjörnunnar. Júpiter er gasrisis, fimmta reikistjarnan frá Sólu og jafnframt sú lang stærsta. Frekari upplýsingar um hana má finna á Stjörnufræðivefnum. Juno mun rannsaka kjarna plánetunnar, norðurljós, segulsvið, vatnsmang og andrúmsloft og fleira. Rannsóknirnar hefjast eftir um þrjá mánuði, samkvæmt Reuters. Rannsóknir munu standa yfir í um 20 mánuði, en gífurleg geislun lendir á Juno og er búnaður geimfarsins hýstur í sérstakri hvelfingu úr títaníum. Það mun þó ekki duga til lengdar og búnaður mun gefa sig. Þá verður geimfarið látið brotlenda á Júpiter.Samkvæmt vef NASA mun verkefnið leiða til mikillar aukningar í skilningi mannsins á uppbyggingu reikistjarna og hvernig þær myndast. Mikil fagnaðarlæti brutust út meðal starfsmanna NASA og Lockheed Martin þegar staðfest var að Juno var komið á sporbraut um Júpiter."Welcome to Jupiter." This is the moment NASA learned the Juno space probe had entered Jupiter's orbit https://t.co/yFUjYaKaXo— Sky News (@SkyNews) July 5, 2016 Frá því að geimfarinu var skotið á loft frá Flórída í ágúst 2011, hefur Juno ferðast 2,8 milljarða kílómetra á tæpum fimm árum. Til að komast til Júpiter þurfti fyrst að senda geimfarið innar í sólkerfið og síðan var þyngdarafl jarðarinnar notað til þess að auka hraða Juno í átt til Júpiter. AP fréttaveitan hefur tekið saman nokkrar skemmtilegar tölur um geimfarið. Skilaboð frá Juno eru 48 mínútur og 19 sekúndur að ferðast til jarðarinnar og öfugt. Juno er annað geimfarið sem sent er til Júpiter, en Galileo var skotið á loft árið 1989. Það var á braut um reikistjörnuna í um tíu ár og tók myndir af henni og þremur tunglum hennar. Meðal annars fundust ummerki um haf undir ísilögðu yfirborði tunglsins Europa. Á leiðinni til Júpiter tók Juno upp myndband sem sýnir hreyfingu tungla reikistjörnunnar. Myndbandið sem NASA gerði byrjar þann 12. júní þegar Juno var í um sextán milljóna kílómetra fjarlægð frá Júpiter. Það endar þann 29. í um fimm milljónka kílómetra fjarlægð. Kynningarmyndband NASA
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Sjá meira