"Ég get ekki meir, ég hreinlega þoli ekki meir“ Samúel Karl Ólason skrifar 16. nóvember 2016 10:06 „
Stundum hugsa ég með mér: Ég get ekki horft á þetta. Ég get ekki meir, ég hreinlega þoli ekki meir.“ Þetta segir Sigríður Thorlacius í nýjasta ákalli UNICEF vegna hrikalegs ástands í Nígeríu og nágrannaríkjum. Þar er hún að tala um að hún geti stundum ekki horft á myndir og myndbönd af þjáningum barna og stundum langi hana að slökkva á tölvunni. Hins vegar viti hún að þó hún slökkvi á tölvunni hverfa hörmungar barnanna og neyðin ekki. Nærri því hálf milljón barna í fjórum ríkjum Afríku eru í lífshættu vegna vannæringar. Verði ekkert gert er talið að nærri því 75 þúsund börn muni deyja í norðurhluta Nígeríu, eða rúmlega 150 á dag. Hægt er að styrkja neyðarsöfnunina með því að senda sms-ið BARN í nr 1900 (1.000 kr).Mynd/UNICEFÁstæða neyðarinnar er meðal annars skortur á uppskeru, hækkandi matvælaverð og stórfelldur fólksflótti vegna árása vígahreyfingarinnar Boko Haram. Löndin sem um ræðir eru Nígería, Tsjad, Níger og Kamerún en svæðið er eitt það fátækasta í heimi. Barn sem þjáist af alvarlegri bráðavannæringu er níu sinnum líklegra til að deyja af völdum sjúkdóma en önnur börn sem veikjast, til dæmis af malaríu, lungnabólgu og niðurgangspestum. Venjulega er því talað um að börn láti lífið af orsökum tengdum vannæringu. Staðan er hins vegar svo slæm núna að sums staðar í Borno-héraði í norðausturhluta Nígeríu svelta börn til dauða. Ef hægt er að veita öllum börnum í Borno, sem þjást af alvarlegri vannæringu, viðeigandi meðferð er hægt að bjarga meira en 99% þeirra.UNICEF hefur í áratugi verið á staðnum í öllum fjórum ríkjunum sem um ræðir og hefur nú þegar útvegað mikið magn af lífsnauðsynlegum hjálpargögnum, meðal annars með hjálp heimsforeldra.
Tengdar fréttir „Þetta er sjón sem ég mun aldrei gleyma“ Páll Óskar Hjálmtýsson kallar eftir hjálp handa vannærðum börnum Nígeríu. 15. nóvember 2016 09:07 Ekki horfa, hjálpaðu UNICEF setur á laggirnar neyðarsöfnun vegna lífshættu fjölda barna í Afríku. 14. nóvember 2016 10:27 Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Innlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Sjá meira
„Þetta er sjón sem ég mun aldrei gleyma“ Páll Óskar Hjálmtýsson kallar eftir hjálp handa vannærðum börnum Nígeríu. 15. nóvember 2016 09:07
Ekki horfa, hjálpaðu UNICEF setur á laggirnar neyðarsöfnun vegna lífshættu fjölda barna í Afríku. 14. nóvember 2016 10:27