Talíbanar felldu þrjátíu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 1. júlí 2016 05:00 Sprengjuárás var gerð á lögreglumenn utan við Kabúl í gær.
Að minnsta kosti þrjátíu létu lífið þegar talíbanar gerðu sprengjuárás á afganska lögreglumenn rétt utan við höfuðborgina Kabúl. Þá særðust einnig fimmtíu. Tvær sprengjur skullu á rútulest lögreglumanna sem var að ferja nýútskrifaða lögreglumen frá útskriftarathöfn í vesturhluta borgarinnar. Musa Khan, hverfisstjóri Paghman-hverfis í Kabúl, sagði í samtali við BBC að allir hinna látnu utan tveggja væru nýútskrifaðir úr lögregluskóla. Talíbanar lýstu yfir ábyrgð á árásinni stuttu eftir að hún var gerð. Í yfirlýsingu þeirra segir að fyrri sprengjumaðurinn hafi gert áhlaup á eina rútu og þegar neyðaraðstoð barst hafi annar ekið bíl hlöðnum sprengiefni á rúturnar. Ashraf Ghani, forseti Afganistans, fordæmdi árásina í gær. „Árásir talíbana eru glæpir gegn mannkyninu,“ sagði Ghani. „Á meðan múslimar eru uppteknir við bænahald þennan heilaga ramadanmánuð halda talíbanar áfram að fremja hrottalega glæpi, drepa saklaust fólk og vekja ótta,“ sagði hann enn fremur. Árásin er áttunda stóra árás talíbana á árinu og sú þriðja í þessum mánuði. Fjórtan nepalskir öryggisverðir voru myrtir í sjálfsmorðsárás á rútu í höfuðborginni þann nítjánda þessa mánaðar og afganskur þingmaður auk þriggja aðstoðarmanna var myrtur í sprengjuárás þann fimmta.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júlí 2016
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Fleiri fréttir Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Sjá meira