Af bekknum hjá Leicester í enska landsliðið á þremur árum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. mars 2016 08:00 Vorið 2013 hefðu eflaust fáir búist við því að Kane, Vardy og Drinkwater væru allir í enska landsliðinu þremur árum seinna. vísir/getty
Hvað er merkilegt við varamannabekkinn hjá Leicester City í tveimur umspilsleikjum gegn Watford um sæti í ensku úrvalsdeildinni vorið 2013? Jú, þar sátu þrír leikmenn enska landsliðsins í dag; Jamie Vardy, Harry Kane og Danny Drinkwater. Vardy og Kane skoruðu báðir í 2-3 sigri Englands á Þýskalandi í vináttulandsleik í Berlín í gær. Drinkwater sat hins vegar allan tímann á bekknum en búist er við því að hann fái að spreyta sig gegn Hollandi á þriðjudaginn og leiki þar með sinn fyrsta landsleik.Sjá einnig: Vardy fyrsti Leicester-maðurinn í 31 ár sem skorar fyrir England Vardy kom ekkert við sögu í áðurnefndum umspilsleikjum 2013 en hann var þá á sínu fyrsta tímabili hjá Leicester eftir að hafa komið frá utandeildarliði Fleetwood Town. Drinkwater og Kane komu inn á sem varamenn í báðum leikjunum gegn Watford sem Leicester tapaði, 3-2 samanlagt. Drinkwater var á þessum tíma á sínu öðru tímabili hjá Leicester en félagið keypti hann af Manchester United í janúar 2012. Hann hefur síðan þá leikið 166 leiki fyrir Leicester og skorað 12 mörk. Kane var hins vegar í láni hjá Leicester frá Tottenham vorið 2013 en framherjinn öflugi lék 13 leiki með Refunum og skoraði tvö mörk. Þetta var í síðasta sinn sem Spurs lánaði Kane en hann sló svo eftirminnilega í gegn með liðinu á síðasta tímabili og skoraði 31 mark í öllum keppnum. Knattspyrnustjóri Leicester á þessum tíma var Nigel Pearson en hann kom liðinu upp í úrvalsdeildina vorið 2014, hélt því svo uppi áður en hann var látinn taka pokann sinn síðasta sumar. Á myndinni hér að ofan má sjá Pearson ásamt Kane, Vardy og Drinkwater á bekknum hjá Leicester fyrir þremur árum.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Haaland sló met Agüero Enski boltinn ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Sjá meira