Um sjö þúsund manns á Stockfish Stefán Árni Pálsson skrifar 3. mars 2015 09:32 Fjölmargar gæðamyndir voru sýndar á hátíðinni.
Á sjöunda þúsund manns sóttu Stockfish-evrópska kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem lauk um helgina en þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar. „Hátíðin heppnaðist afar vel og er gestum þakkaðar frábærar viðtökur. Bíó Paradís iðaði af lífi þá tíu daga sem Stockfish hátíðin stóð yfir,“ segir í tilkynningunni. Fjöldi erlendra gesta sóttu hátíðina heim, bæði úr alþjóðlegu kvikmyndaumhverfi og blaðamenn. Á meðal þeirra voru hinn íslenski Sverrir Guðnason, leikari og Jens Östberg leikstjóri Flugnagarðsins / Blow Fly Park, Óskarsleikstjórinn Rachid Bouchareb og leikkonan, Brenda Blethyn. Einnig komu til landsins norsku leikstjórarnir Unni Straume, Bent Hamer, Eskil Vogt auk Pavel Jech skólameistara hins þekkta FAMU skóla í Tékklandi og Christine Vachon, framleiðanda. Sigurður Sverrir Pálsson, kvikmyndatökumaður var sérstaklega heiðraður á hátíðinni en enginn íslenskur myndatökumaður hefur tekið upp jafn margar bíómyndir og hann, eða alls fimmtán talsins. Auk þeirra voru fjöldamargir fleiri gestir bæði viðstaddir viðburði og sýningar hátíðarinnar. Sex fagfélög í kvikmyndagerð standa að Stockfish en þau eru: SÍK- Samband Íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SKL - Samtök kvikmyndaleikstjóra, FK - Félag kvikmyndagerðarmanna, FÍL – Félag Íslenskra leikara, WIFT – Konur í kvikmyndum og sjónvarpi og FLH - Félag leikskálda og handritshöfunda og skipa fulltrúar þessara félaga stjórn hátíðarinnar. Meðal samstarfsaðila eru Reykjavíkurborg og Evrópustofa. Fjórar kvikmyndir Stockfish halda áfram í almennum sýningum í Bíó Paradís, hin argentínska Wild Tales / Hefndarsögur sem var leikstýrt af Damián Szifrón og framleidd af Pedro Almodovar. Hún hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin. Einnig verður áfram sýnd kvikmyndin sem vann áhorfendaverðlaun hátíðarinnar, What We Do in the Shadows en hún var grínmynd ársins að mati Peter Bradshaw hjá The Guardian. Aðrar myndir sem fara í almennar sýningar eru The Trip to Italy og Flugnagarðurinn - Blowfly Park með Sverri Guðnasyni í aðalhlutverki, en hann var gestur hátíðarinnar ásamt leikstjóranum Jens Östberg. Flugnagarðurinn - Blowfly Park mun fara inn í verkefnið Stockfish evrópsk kvikmyndahátíð á hjólum sem verður sett af stað á næstu vikum.
Bíó og sjónvarp Óskarinn Tengdar fréttir „Þá gæti ég skriðið inn í runna og dáið“ Sverrir Guðnason, sem er stórstjarna í Svíþjóð, var viðstaddur frumsýningu kvikmyndarinnar Flugnagarðurinn (Flugparken) á Stockfish kvikmyndahátíðinni í Bíó Paradís í kvöld. 19. febrúar 2015 20:06 Kvikmyndasjóður er fjárfestingarsjóður Kvikmyndahátíðin Stockfish hefst í dag og Guðrún Edda Þórhannesdóttir framleiðandi segir að á hátíðinni sé að finna allt það besta sem evrópsk kvikmyndagerð hefur að bjóða auk þess að auðga tengslanet íslenskra kvikmyndagerðarmanna svo um munar. 19. febrúar 2015 12:00 Dæturnar eru í fyrsta sæti Sverrir Guðnason hélt að barnsdraumurinn um að verða leikari væri glataður þegar hann flutti frá Íslandi til Svíþjóðar. Nú er hann einn vinsælasti leikari Svía en gætir sig á því að færa ekki dýrmætar fórnir. 21. febrúar 2015 11:00 Blessuð með algjöru metnaðarleysi Ég ætla að skella mér Gullna hringinn, í Bláa lónið og kannski skoða ég Reðursafnið segir enska stórleikkonan Brenda Blethyn sem er gestur kvikmyndahátíðarinnar Stockfish sem nú stendur sem hæst í Bíó Paradís. Hún segir vinnuna með Mike Leigh hafa breytt öllu. 21. febrúar 2015 11:00 Kynjakvótar í kvikmyndagerð Friðrik Þór óttast að illa fari í hinum viðkvæma bíóbransa ef kynjaðar forsendur eiga að ráða för; kynjakvótakrafan er sett fram á fölskum forsendum. 25. febrúar 2015 10:46 Sjö myndir sem þú þarft að sjá á Stockfish Eitthvað fyrir alla sem ætla að skella sér í gæðabíó á næstunni. 19. febrúar 2015 13:00 Mest lesið Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Nágrannar kveðja endanlega í dag Lawrence og Hutcherson snúa aftur í Hungurleikana Ósáttur við framhaldið: „Skildu ekki hvað gerði þá fyrstu sérstaka“ „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Yrsa, Hannes og Björg í eina sæng með Thule Sagði „frost í greininni“ og krafði Loga um breytingar Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Udo Kier er látinn Helga Margrét tekur við af Króla Framleiða keflvískan krimma sem gerist á hápunkti kalda stríðsins Æstur aðdáandi óð í Grande Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Sópa til sín verðlaunum um heim allan Íslenskur Taskmaster kemur í vor Hannes í víking með gamansama glæpamynd Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Sjá meira
„Þá gæti ég skriðið inn í runna og dáið“ Sverrir Guðnason, sem er stórstjarna í Svíþjóð, var viðstaddur frumsýningu kvikmyndarinnar Flugnagarðurinn (Flugparken) á Stockfish kvikmyndahátíðinni í Bíó Paradís í kvöld. 19. febrúar 2015 20:06
Kvikmyndasjóður er fjárfestingarsjóður Kvikmyndahátíðin Stockfish hefst í dag og Guðrún Edda Þórhannesdóttir framleiðandi segir að á hátíðinni sé að finna allt það besta sem evrópsk kvikmyndagerð hefur að bjóða auk þess að auðga tengslanet íslenskra kvikmyndagerðarmanna svo um munar. 19. febrúar 2015 12:00
Dæturnar eru í fyrsta sæti Sverrir Guðnason hélt að barnsdraumurinn um að verða leikari væri glataður þegar hann flutti frá Íslandi til Svíþjóðar. Nú er hann einn vinsælasti leikari Svía en gætir sig á því að færa ekki dýrmætar fórnir. 21. febrúar 2015 11:00
Blessuð með algjöru metnaðarleysi Ég ætla að skella mér Gullna hringinn, í Bláa lónið og kannski skoða ég Reðursafnið segir enska stórleikkonan Brenda Blethyn sem er gestur kvikmyndahátíðarinnar Stockfish sem nú stendur sem hæst í Bíó Paradís. Hún segir vinnuna með Mike Leigh hafa breytt öllu. 21. febrúar 2015 11:00
Kynjakvótar í kvikmyndagerð Friðrik Þór óttast að illa fari í hinum viðkvæma bíóbransa ef kynjaðar forsendur eiga að ráða för; kynjakvótakrafan er sett fram á fölskum forsendum. 25. febrúar 2015 10:46
Sjö myndir sem þú þarft að sjá á Stockfish Eitthvað fyrir alla sem ætla að skella sér í gæðabíó á næstunni. 19. febrúar 2015 13:00