Kvikmyndasjóður er fjárfestingarsjóður Magnús Guðmundsson skrifar 19. febrúar 2015 12:00 Það sem gerir þessa hátíð sérstaka á Íslandi er að hún er í senn faghátíð og full af skemmtilegum myndum fyrir alla. Visir/GVA
Stockfish – evrópsk kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í dag í Bíó Paradís og stendur til 1. mars. Á hátíðinni verða sýndar 30 kvikmyndir sem hlotið hafa mikla athygli á hátíðum víða um heim en rata því miður ekki alltaf í sýningarsali hérlendis. Hátíðin er haldin í samvinnu við Edduna, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin, sem verða afhent næstkomandi laugardagskvöld. Guðrún Edda Þórhannesdóttir framleiðandi er í stjórn Stockfish og segir dagskrá Stockfish afar fjölbreytta og að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Það sem gerir Stockfish sérstaka í íslenskri kvikmyndahátíðaflóru er að þetta er líka bransahátíð. Að baki hátíðinni stendur Bíó Paradís ásamt sex fagfélögum sem koma að kvikmyndagerð; framleiðendur, leikstjórar, kvikmyndagerðarmenn, leikarar, handritshöfundar og konur í kvikmyndum. Fulltrúar þessara félaga mynda stjórnina og það gerir hana þverfaglega. Stockfish byggir á gömlu Kvikmyndahátíðinni í Reykjavík sem var í fullu fjöri frá 1978 til 2001 en lagðist þá af illu heilli, en nú komum við aftur af meiri krafti en nokkru sinni með góðum styrktaraðilum eins og Reykjavíkurborg, Evrópustofu, Kvikmyndamiðstöð, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og fleirum.“ Guðrún Edda leggur áherslu á að það séu mjög spennandi vinnusmiðjur og verkefni framundan á Stockfish. „Ég má til með að nefna Midpoint, handritavinnustofu Pavels Jech, frá virtasta kvikmyndskóla heims, FAMU, og hann verður líka með fyrirlestur sem hann kallar „Tíu brandarar sem munu kenna þér allt sem þú þarft að vita um handritaskrif“. Þetta verður á föstudagskvöldið í Bíó Paradís og opið öllum áhugasömum. Þá verður enska stórleikkonan Brenda Blethyn ásamt alsírska leikstjóranum Rachid Boucharid með masterclass um samband leikara og leikstjóra á mánudag og fjölmargir fleiri viðburðir verða á hátíðinni, bæði fyrir fagfólk og áhugafólk, sem ég hvet alla til þess að kynna sér nánar. Á meðal gesta verða m.a. þrír frábærir norskir leikstjórar sem eru mættir hingað með mjög svo spennandi en ólíkar myndir og svo sæki ég alltaf sjálf í að mæta á myndir þar sem boðið er upp á spurningar og svör með listamönnunum að sýningu lokinni. Það getur reynst ótrúlega fræðandi og skemmtilegt.“ Kvikmyndahátíð á borð við Stockfish snýst að miklu leyti um tengslamyndun og að auðga kvikmyndamenningu okkar. Kvikmyndaheimurinn er alþjóðlegur heimur og það er fjöldi Íslendinga sem vinnur í sínu fagi víða um heim, þó fréttir berist helst af leikurum og leikstjórum eðli málsins samkvæmt. „Á Stockfish erum við að tengja saman erlenda hátíðargesti og Íslendinga í faginu og sjá til þess að það eigi sér stað mikilvægt samtal þarna á milli. Við erum í senn að mynda tengslanet, læra af gestum okkar og síðast en ekki síst að kynna það sem við höfum upp á að bjóða, því hér höfum við bæði frábært fagfólk og tökustaði í íslenskri náttúru sem eiga engan sinn líka í heiminum. Í þessu felast gríðarleg verðmæti fyrir okkur sem þjóð ef rétt er með farið. Kvikmyndasjóður ætti í raun miklu frekar að kallast fjárfestingarsjóður því vilyrðin sem hann gefur út eru ávísanir á erlent fjármagn . Með vilyrðum frá Kvikmyndasjóði er verið að sækja mikið fjármagn til Evrópu, Norðurlandanna og víðar og þetta er afskaplega arðbær fjárfesting fyrir samfélagið. Í þessu samhengi er tengslanetið mjög mikilvægt því í gegnum erlenda meðframleiðendur opnast leiðir inn í erlenda sjóði.“ Á Stockfish er úr mörgu að velja og valið getur reynst erfitt fyrir hinn almenna áhorfanda. Guðrún Edda segir að það sé vissulega erfitt að velja inn á slíka hátíð en engu að síður sé reynt að setja hátíðina þannig upp að það sé hægt að komast yfir hana með góðu móti. „Stockfish er sambland af öllu því besta sem er að gerast í Evrópu og þar erum við að tala um bæði áhorfendavænar og ögrandi myndir. Ein leiðin er að fikra sig eftir verðlaunabrautinni og setja þær myndir í forgang, önnur að velja þær sem eru mest ögrandi eða þá að horfa til landa eða leikstjóra. Stóra málið er að koma sér strax af stað og drífa sig í bíó því af nógu er að taka. Ég segi nú bara góða skemmtun!“
Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Sjö myndir sem þú þarft að sjá á Stockfish Eitthvað fyrir alla sem ætla að skella sér í gæðabíó á næstunni. 19. febrúar 2015 13:00 Mest lesið Nýbökuðu hjónin kíktu í kaffi til Guðna Lífið Eva Ruza og Gunna Dís inn fyrir Gísla og Felix Lífið Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Bíó og sjónvarp Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Lífið Bergur og Inga Lóa selja eitt glæsilegasta hús Garðabæjar Lífið Missti allar tærnar þrjátíu árum eftir að konan skar undan honum Lífið Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni Lífið Þorði loks á 22, gekk að Felix og sagði hæ Lífið Gunna Dís kynnir Eurovision í stað Gísla Marteins Lífið Fleiri fréttir Keanu Reeves mun leika helsta keppinaut Sonic Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Hámhorfið: Hvað eru landsliðskonur í knattspyrnu að horfa á? Fylgdi Mari Jaersk á æskuslóðir: „Hann stakk hníf inn í lungun á pabba tvisvar“ Rowling enn bitur út í Harry Potter-stjörnurnar Frumsýning á Vísi: Fyrsta kitlan úr Snertingu Bridget Jones 4 kemur út á næsta ári Mun túlka Springsteen Finna enn gríðarlega sterk áhrif Eurovision-myndarinnar Verður aftur laglega ljóskan Elle Woods Svar Íslands og Sviss við Forrest Gump mætir á skjáinn Hámhorfið: Hvað eru prestar landsins að horfa á? Blendnar tilfinningar á frumsýningu Oppenheimer í Japan Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 „Hann er með svona Connery áru yfir sér“ Spennuþáttaröðin Reykjavík Fusion í framleiðslu í sumar Báðar fylkingar House of the Dragon fá sína stiklu Bað hennar við sólsetrið á 100 mánaða afmælinu Nýir Star Wars þættir líta dagsins ljós Sagður vera næsti James Bond Sá Dune tvö hundruð sinnum og er búinn að fara nítján sinnum á Dune 2 í bíó Hámhorfið: Hvað eru listakonur landsins að horfa á? Heimaleikurinn með enn önnur verðlaunin í Glasgow Spáir í spilin: „Alveg eins hægt að afhenda Nolan styttuna nú þegar“ Hryllingsmyndin um Bangsímon valin sú versta á Razzie-verðlaununum Hámhorfið: Hvað er kvikmyndagerðafólkið að horfa á? Fyrsta stikla Fallout lítur dagsins ljós Dauðvona maður horfði á Dune 2 í fartölvu leikstjórans Hámhorfið: Hvað eru Æði strákarnir að horfa á? Sjá meira
Sjö myndir sem þú þarft að sjá á Stockfish Eitthvað fyrir alla sem ætla að skella sér í gæðabíó á næstunni. 19. febrúar 2015 13:00