Lífið

DiCaprio kærir

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Leonardo DiCaprio er ekki ánægður með franska tímaritið Oops!
Leonardo DiCaprio er ekki ánægður með franska tímaritið Oops! Vísir/Getty
Leonardo DiCaprio hefur kært franska slúðurtímaritið Oops! fyrir að birta frétt þess efnis að leikarinn ætti von á barni með söngkonunni Rihönnu og kærði sig ekki um að taka þátt í lífi barnsins.

Fréttin var birt á forsíðu tímaritsins þann 28. maí síðastliðinn og tók DiCaprio það óstinnt upp. Sagði hana með öllu ranga og ku samkvæmt erlendum fréttamiðlum ætla að krefjast 20.000 Bandaríkjadala í skaðabætur og lögfræðikostnað.

Sögusagnir þess efnis að leikarinn og söngkonan séu par hafa verið á kreiki undanfarna mánuði en nú á söngkonan að vera að slá sér upp með knattspyrnumanninum Karim Benzema og DiCaprio með fyrirsætunni Kelly Rohrbach.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.