Van Gaal svaraði eitt prósent og Chicharito fór frá United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2015 11:00 Javier Hernandez er að standa sig vel með Bayer Leverkusen. Vísir/Getty
Javier Hernandez, framherji Bayer Leverkusen og fyrrum leikmaður Manchester United, hefur sagt frá samskiptum sínum og knattspyrnustjórans Louis van Gaal sem urðu til þess að hann ákvað að yfirgefa enska úrvalsdeildarliðið. Manchester United seldi Javier Hernandez til þýska liðsins Bayer Leverkusen í haust og Mexíkóbúinn hefur síðan raðað inn mörkum í þýsku deildinni og í Meistaradeildinni. Nýjustu tölur sína að frá því í október hefur Javier Hernandez skorað fimm mörkum meira en allt lið Manchester United til samans, fimmtán mörk á móti tíu. „Ég fór og hitti Van Gaal og hann sagði að það væru bara eins prósent líkur á því að ég fengi að spila í minni stöðu. Ég fór því til Bayer," sagði Javier Hernandez í viðtali við spænska blaðið Marca. „Ég var fullur sjálfstraust frá fyrsta degi. Mér fannst ég vera mikilvægur og ekki bara vegna markanna minna. Ég fann mikilvægið meðal annars á því að ég er að byrja alla leiki," sagði Hernandez sem var mikið notaður sem varamaður hjá Manchester United og hjá Real Madrid þar sem hann var á láni á síðasta tímabili. Javier Hernandez hefur skoraði 19 mörk á tímabilinu þar af sextán mörk í síðustu fimmtán leikjum sínum með Bayer Leverkusen. Hernandez kom til Manchester United frá Guadalajara árið 2010 og skoraði 20 mörk á sínu fyrsta tímabili. Sir Alex Ferguson hafði mikila trúa á stráknum. „Ég er svo þakklátur Ferguson og ég tel að hann sé sá besti. Allir leikmenn höfðu sitt hlutverk og sinn stað innan liðsins. Hann opnaði dyrnar fyrir mig til Evrópu og ég vann tvo titla með liðinu," sagði Hernandez. Javier Hernandez skoraði þrennu fyrir Bayer Leverkusen um síðustu helgi en á sama tíma þá tapaði Manchester United fyrir nýliðum Bournemouth aðeins nokkrum dögum eftir að liðið datt út úr Meistaradeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Sjá meira