Menning

Vísir birtir glænýjan bóksölulista: Barnabækur gera sig breiðar á bóksölulistum

Jakob Bjarnar skrifar
Þessir þrír láta ekki deigan síga og Vísir veit að þeir ætla sér að velta Arnaldi, segja að það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær.
Þessir þrír láta ekki deigan síga og Vísir veit að þeir ætla sér að velta Arnaldi, segja að það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær.
Barna- og unglingabókahöfundarnir Gunnar Helgason, Vilhelm Anton og Ævar Þór velgja glæpasagnakóngi og drottningu undir uggum. Enn sem fyrr eru það þau Arnaldur og Yrsa sem tróna á toppi bóksölulista, og samkvæmt heimildum Vísis, úr innsta hring, þarf mikið til að koma ef það á að hafa krúnuna af Arnaldi Indriðasyni. En, það má láta sig dreyma.

Vísir birtir nýja bóksölulista, sala sem tekur til daganna 23. til 29. nóvember og gaman er að rýna í þá. Í sögulegu samhengi: Sex af þeim tíu höfundum sem eiga mest seldu bækur síðustu viku voru einnig í toppsætunum á þessum tíma í fyrra. Þetta eru þau Arnaldur Indriðason, Yrsa Sigurðardóttir með glæpasögur sínar, Ævar Þór Benediktsson, Gunnar Helgason, Vilhelm Anton Jónsson, allir með barnabækur og svo Óttar Sveinsson með Útkallsbókina sína.

Í því ljósi má færa rök fyrir því að á meðan allir ofangreindir höfundar senda árlega frá sér nýjar bækur sé það vart á færi margra annarra að tylla sér inn á topplistann. Það tekst þeim Páli Baldvini, Auði Jónsdóttur, Ólafi Jóhanni og Ragnhildi Thorlacius en tvö þeirra fyrrnefndu voru einmitt tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í gær.

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru kynntar í gær en þegar litið er á listana má sjá að ekki eru allar bækur sem tilnefndar voru meðal mest seldu bóka landsins. Bækur Hallgríms Helgasonar og Hermanns Stefánssonar eru til dæmis ekki á meðal 10 mest seldu skáldverka vikunnar en spennandi verður að sjá hvaða áhrif tilnefningarmiðinn góði muni hafa á sölu verka þeirra í þessari viku.

En, svona lítur þetta út og hefst þá lesturinn:

Topplistinn söluhæstu titlar Bóksölulistans 23.-29. nóvember

  1. - Þýska húsið - Arnaldur Indriðason
  2. - Sogið - Yrsa Sigurðardóttir
  3. - Þín eigin goðsaga - Ævar Þór Benediktsson
  4. - Mamma klikk! - Gunnar Helgason
  5. - Útkall í hamfarasjó - Óttar Sveinsson
  6. - Stríðsárin 1938 - 1945 - Páll Baldvin Baldvinsson
  7. - Vísindabók Villa : geimurinn og geimferðir - Vilhelm Anton/Sævar Helgi
  8. - Stóri skjálfti - Auður Jónsdóttir
  9. - Endurkoman - Ólafur Jóhann Ólafsson
  10. - Brynhildur Georgía Björnsson - Ragnhildur Thorlacius
 

Ævisögur

  1. Brynhildur Georgía Björnsson - Ragnhildur Thorlacius
  2. Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðs - Ólafur Þór Jóelsson / Viðar Brink
  3. Týnd í paradís - Mikael Torfason
  4. Egils sögur - á meðan ég man - Páll Valsson og Egill Ólafsson
  5. Munaðarleysinginn - Sigmundur Ernir Rúnarsson
  6. Þá hló Skúli - Óskar Guðmundsson
  7. Þetta var nú bara svona - Jóhann Guðni Reynisson
  8. Eitt á ég samt : endurminningar - Árni Bergmann
  9. Bítlarnir telja í - Mark Lewisohn
  10. Eftirlýstur - Bill Browder
 

Íslensk skáldverk

  1. Þýska húsið - Arnaldur Indriðason
  2. Sogið - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Stóri skjálfti - Auður Jónsdóttir
  4. Endurkoman - Ólafur Jóhann Ólafsson
  5. Eitthvað á stærð við alheiminn - Jón Kalman Stefánsson
  6. Nautið - Stefán Máni
  7. Útlaginn - Jón Gnarr
  8. Hundadagar - Einar Már Guðmundsson
  9. Og svo tjöllum við okkur í rallið - Guðmundur Andri Thorsson
  10. Dimma - Ragnar Jónsson
 

Þýdd skáldverk

  1. Víga-Anders og vinir hans - kilja - Jonas Jonasson
  2. Víga-Anders og vinir hans - innb. - Jonas Jonasson
  3. Hrellirinn - Lars Kepler
  4. Þú ert ætíð í huga mér - innb. - Mary Higgins Clark
  5. Það sem ekki drepur mann - David Lagercrantz
  6. Þú ert ætíð í huga mér - kilja - Mary Higgins Clark
  7. Grimmsævintýri : fyrir gamla og unga - Philip Pullman
  8. Í nótt skaltu deyja - Viveka Stein
  9. Svo þú villist ekki í hverfinu hérna - Patrick Modiano
  10. Konan í lestinni - Paula Hawkins
 

Barnabækur

  1. Þín eigin goðsaga - Ævar Þór Benediktsson
  2. Mamma klikk! - Gunnar Helgason
  3. Vísindabók Villa : geimurinn og geimferðir- Vilhelm Anton Jónsson / Sævar Helgi Bragason
  4. Skósveinarnir - leitið og finnið – Bókaútgáfan Hólar
  5. Matreiðslubókin mín og Mikka - Walt Disney
  6. Kafteinn ofurbrók og endurkoma Túrbó 2000 klósettsins - Dav Pilkey
  7. Kvöldsögur fyrir krakka - Setberg
  8. Bestu barnabrandararnir - bara góðir!– Ýmsir höfundar
  9. Spurningabókin 2015 - Bjarni Þór Guðjónsson
  10. Dúkka - Gerður Kristný
 

Ungmennabækur

  1. Stelpur - Kristín Tómasdóttir
  2. Fótboltaspurningar 2015- Bjarni Þór Guðjónsson
  3. Skytturnar þrjár - Illugi Jökulsson
  4. Leitin að tilgangi unglingsins- Bryndís Björgvinsdóttir / Arnór Björnsson / Óli Gunnar Gunnarsson
  5. Vetrarfrí - Hildur Knútsdóttir
  6. Fótbolti: Bestu karlarnir - Illugi Jökulsson / Björn Þ. Sigbjörnsson
  7. Skuggasaga : ARftakinn - Ragnheiður Eyjólfsdóttir
  8. Drauga-Dísa - Gunnar Theodór Eggertsson
  9. 15 grimmustu risaeðlurnar - Illugi Jökulsson
  10. 30 dýr í útrýmingarhættu - Illugi Jökulsson
 

Fræði og almennt efni

  1. Útkall í hamfarasjó - Óttar Sveinsson
  2. Stríðsárin 1938 - 1945 - Páll Baldvin Baldvinsson
  3. Kafbátur í sjónmáli - Háski í hafi - Illugi Jökulsson
  4. Traktorar í máli og myndum - Jemima Dunne
  5. Hrekkjalómafélagið - Ásmundur Friðriksson
  6. Gleðilegt uppeldi - Margrét Pála Ólafsdóttir
  7. Spakmælabókin - Torfi Jónsson
  8. Þarmar með sjarma - Giulia Enders
  9. Nína S. - Hrafnhildur Schram
  10. Þegar siðmenningin fór fjandans til - Gunnar Þór Bjarnason
 

Ljóð & leikrit

  1. Öskraðu gat í myrkrið - Bubbi Morthens
  2. Jólaljóð - Gylfi Gröndal valdi
  3. Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna - Ýmsir / Silja Aðalsteinsdóttir ritst.
  4. Frelsi - Linda Vilhjálmsdóttir
  5. Ljóðasafn - Vilborg Dagbjartsdóttir
  6. Til hughreystingar þeim sem finna sig ekki í samtíma sínum: lög og textar - Ragnar Helgi Ólafsson
  7. Hvítir veggir - Sigrún Haraldsdóttir
  8. Ljóðvegasafn - Sigurður Pálsson
  9. Góðir farþegar - Sindri Freysson
  10. Ígrip - Stefán Finnson
 

Matreiðslubækur

  1. Himneskt að njóta - Sólveig Eiríksdóttir / Hildur Ársælsdóttir
  2. Stóra Disney heimilisréttabókin - Margrét Þóra Þorláksdóttir ritst.
  3. Grillréttir Hagkaups - Hrefna Rósa Sætran
  4. Hollar og heillandi súpur - Rósa Guðbjartsdóttir
  5. Sætmeti án sykurs - Nanna Rögnvaldardóttir
  6. Vín - umhverfis jörðina á 110 flöskum - Steingrímur Sigurgeirsson
  7. Ömmumatur Nönnu - Nanna Rögnvaldardóttir
  8. Café Sigrún - Sigrún Þorsteinsdóttir
  9. Veisluréttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir
  10. Glútenfrítt líf - Þórunn Eva Guðbjargar Thapa
 

Handverksbækur

  1. Fléttur - Laura Kristine Arnesen
  2. Týnda hafið - Johanna Basford
  3. Litabókin hans Nóa - Marjorie Sarnat
  4. Íslens litadýrð - Elsa Nielsen
  5. Peysubókin - Lene Holme Samoe
  6. Heillandi heimur dýranna - Litabók til slökunar
  7. Leynigarður - Johanna Basford
  8. Prjónabiblían - Gréta Sörensen
  9. Vettlingaprjón - Guðrún S. Magnúsdóttir
  10. Krúttlegt hekl fyrir litlar tásur - Vita Apala
 

Hljóðbækur

  1. Útkall í hamfarasjó - Óttar Sveinsson
  2. Þýska húsið - Arnaldur Indriðason
  3. Sogið - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Aukaspyrna á Akureyri - Gunnar Helgason
  5. Mamma klikk! - Gunnar Helgason
  6. Jómfrú Ragnheiður : Skálholt 1 - Guðmundur Kamban
  7. Maður sem heitir Ove - Fredrik Backman
  8. Gula spjaldið í Gautaborg - Gunnar Helgason
  9. Bróðir minn Ljónshjarta - Astrid Lindgren
  10. Fiskarnir hafa enga fætur - Jón Kalman Stefánsson
 

Uppsafnaður listi frá áramótum

Söluhæstu bækurnar frá 1. janúar

  1. Þýska húsið - Arnaldur Indriðason
  2. Leynigarður - Johanna Basford
  3. Himneskt er að njóta - Sólveig Eiríksdóttir / Hildur Ársælsdóttir
  4. Sogið - Yrsa Sigurðardóttir
  5. Afturgangan - Jo Nesbø
  6. Stúlkan í tréinu - Jussi Adler Olsen
  7. Konan í lestinni - Paula Hawkins
  8. Iceland : Small World (lítil) - Sigurgeir Sigurjónsson
  9. Blóðið í snjónum - Jo Nesbø
  10. Hamingjuvegur - Liza Marklund





Fleiri fréttir

Sjá meira


×