Innlent

Forsætisráðherra sér tækifæri í yfirtöku ríksins á Íslandsbanka

Heimir Már Pétursson skrifar
Forsætisráðherra segir það geta falið í sér mikil tækifæri við mótun og endurskipulagningu fjármálakerfisins að ríkið eignist Íslandsbanka.  Til greina komi að almenningi verði færður hlutur í bönkunum. Hins vegar þurfi áður eða samhliða að koma á nýju vinnumarkaðslíkan og endurskipuleggja húsnæðiskerfið.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ræddi meðal annars stöðu bankanna á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun og sagði berum orðum að þeir stunduðu vaxtaokur. Það væri óeðlilegt og óviðunandi að bankarnir leggðu fleiri prósenta vexti ofan á verðtryggingu sem ætlað væri að tryggja að sömu verðmæti og lánuð væru skiluðu sér með eðlilegum vöxtum.

Ríkið á nú 98 prósent í Landsbankanum og miklar líkur á að það eignist jafnframt Íslandsbanka við uppgjör þrotabúa gömlu bankanna.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um helgina að til greina kæmi að almenningur eignaðist um 5 prósenta hlut í bönkunum.

„Þetta eru ágætis hugmyndir. Menn hafa aðeins verið að velta þessum hlutum fyrir sér. Þetta er ein þeirra leiða sem koma til greinar. Með þessu væri verið að veita eigendum bankanna , almenningi, beinna hald á eignarhaldinu. Það er eitthvað sem er alveg þess virði að skoða,” segir Sigmundur.

Forsætisráðherra vill hins vegar setja framtíð bankanna í samhengi við endurskoðun á fjármálakerfi þjóðarinnar, skipulag vinnumarkaðsmála og húsnæðiskerfisins. Innan ríkisstjórnarinnar hafi menn óformlega velt fyrir sér þeirri stöðu sem komin yrði upp þegar og ef ríkið eignaðist Íslandsbanka.

„Ef framheldur sem horfir og menn ná að semja um nýtt vinnumarkaðslíkan, ég bind miklar vonir við það en það kemur í ljós fljótlega; ef það gengur og við náum þeim breytingum á húsnæðismarkaðnum sem stefnt er að – þá erum við komin í aðstöðu til að breyta fjármálakerfinu mjög til hins betra,“ segir forsætisráðherra.

Ef ríkið eignaðist einnig Íslandsbanka og ætti þar með tvo af stærstu bönkunum væri það komið í betri stöðu til að endurskipuleggja fjármálakerfið. En margt benti til að eignarhald kröfuhafa föllnu bankanna á núverandi viðskiptabönkum hafi þrýst vaxtarstiginu í landinu upp.

„Núna þegar þetta breytist og menn klára að gera upp þessi slitabú og ríkið endurmetur stefnu sýna í málefnum bankanna og þar með talið s.k. eigendastefnu sem er lýsing á því hvernig bankar þess eiga að starfa; þá felast vissulega í því mikil tækifæri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×