Fótbolti

Sjáðu öll mörkin í Meistaradeildinni á einum stað

Hollenska tvíeykið verður í eldlínunni í kvöld.
Hollenska tvíeykið verður í eldlínunni í kvöld. Vísir/Getty
Stöð 2 Sport mun í kvöld bjóða upp á öll mörk kvöldsins um leið og þau gerast á einum stað í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu en keppnin hefst í kvöld.

Breki Logason mun sjá um þáttinn en honum til aðstoðar í kvöld verða þeir Arnar Gunnlaugsson og Gunnleifur Gunnleifsson.

Munu þeir fylgjast með öllum leikjunum samtímis og skipta yfir á leiki um leið og eitthvað marktækt gerist í þeim. 

Hefst útsending 18:15 og eru áhorfendur hvattir til þess að taka þátt í umræðunni á #CL365 á Twitter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×