Innlent

Mögulegur úrslitafundur í deilunni

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Frá fyrri samningafundi.
Frá fyrri samningafundi. Vísir/Valli
Samninganefndir BHM og hjúkrunarfræðinga sitja á fundum með samninganefnd ríksins í Karphúsinu. Fundurinn gæti verið ákveðinn úrslitafundur í deilunni að mati formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem óttast að lög verði sett á verkfall hjúkrunarfræðinga.

Stíf fundarhöld hafa verið í Karphúsinu í morgun. Klukkan níu mætti samninganefnd Bandalags háskólamanna á fund með samninganefnd ríksins en verkfallsaðgerðir BHM hafa nú staðið í rúmar 9 vikur. Klukkan ellefu kom svo samninganefnd Félags íslenkra hjúkrunarfræðinga til fundar við samninganefnd ríkisins. Lítið hefur þokast í samkomulagsátt í kjaradeilunum undanfarið en vika er síðan samninganefndirnar funduðu síðast. „Það er boðað til þessa fundar sem svona stöðufundar um málið þannig að, þannig að, ég er bara svona hóflega bjartsýnn á að eitthvað gerist í dag,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Landlæknir birti í gær minnisblað sem hann sendi til ríkisstjórnarinnar. Þar er þess krafist að verkföllum ljúki tafarlaust þar sem þau valda óbætanlegu tjóni fyrir sjúklinga og fyrir heilbrigðiskerfið í heild. Ólafur segist óttast að lög verði sett á verkfall hjúkrunarfræðinga. „Eins og ég hef sagt við okkar viðsemjendur þá erum við með ákveðið lágmark sem við getum ekki farið undir og við höfum sagt það að lagasetning mun ekki leysa þetta vandamál heldur eingöngu fresta því og ég stend svo sem bara við það áfram. Komi til þess að það verði hérna lagasetning hef ég mjög miklar áhyggjur af því að hjúkrunarfræðinga hreinlega hverfi á braut og við stöndum uppi með hálf laskað heilbrigðiskerfi,“ segir Ólafur. Hann segir fundinn í dag í geta verið ákveðinn úrslitafund í kjaradeilunni.

Ólafur segir enn bera mikið á milli deiluaðila. „Það er alltaf þessi sami rami sem að var samið um á almenna markaðnum og ég hreinlega upplifi það svolítið þannig að við höfum ekki samningsrétt heldur hafi almenni markaðurinn samið fyrir okkar hönd. Það þykir mér heldur undarlegt þar sem að launakerfi hins opinbera er allt annars eðlis,“ segir Ólafur G. Skúlason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×