Innlent

Malín Brand: Ætlaði að keyra í burtu er ljóst var í hvað stefndi

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Malín fullyrðir að hún hafi ekki komið nálægt bréfasendingunni og sjálfri fjárkúguninni. Hún harmar að hafa blandast inn í málið.
Malín fullyrðir að hún hafi ekki komið nálægt bréfasendingunni og sjálfri fjárkúguninni. Hún harmar að hafa blandast inn í málið. Vísir
„Kjarni málsins er að þarna blandast ég inn í atburðarás sem ég hvorki skipulagði né tengdist nokkurn hátt nema fjölskylduböndum,” segir Malín Brand, blaðamaður á Morgunblaðinu, um aðkomu sína að tilraun til fjárkúgunar á hendur forsætisráðherra. Hún og systir hennar, blaðamaðurinn Hlín Einarsdóttir, voru handteknar síðastliðinn föstudag vegna málsins.

Malín segist ekki hafa trúað því að nokkur tæki bréf systur sinnar alvarlegt. „Þetta kom eiginlega flatt upp á mig vegna þess að ég bjóst ekki við að það sem hún væri að gera, að einhver myndi virkilega taka mark á því,“ segir hún.

„Ég bíð í bílnum á meðan hún ætlar að athuga hvort sitt ætlunarverk hafi tekist en þegar ég sé í hvað stefnir þá ætla ég bara að keyra í burtu, því þetta var ekki það sem ég hafði hugsað mér,“ segir hún.

Kippt úr raunveruleikanum

Malín segist hafa upplifað að henni hafi verið kippt út úr raunveruleikanum þegar hún var handtekin um hádegisbil á föstudag. „Þessi dagur sem ég vakna og ætla að njóta mín í vaktafrí og fara að gera eitthvað skemmtilegt með syni mínum eftir skóla; hann breyttist úr því yfir í að vera handtekin fyrir að vera í bíl með systur minni og allt í einu er ég orðinn aðili að sakamáli,“ segir hún.

Hún segist hafa játað fyrir lögreglunni að hafa haft vitneskju um málið og að hafa ekið systur sinni í Hafnarfjörð til að sækja fjármunina strax í fyrstu skýrslutöku. „Ég hef ekkert að fela. Ég er búin að játa fyrir lögreglunni að það hafi verið heimskulegt að fara í þennan gjörning af því að ég hefði mátt vita betur,“ segir hún.

Malín fullyrðir að hún hafi ekki komið nálægt bréfasendingunni og sjálfri fjárkúguninni. Hún harmar að hafa blandast inn í málið.

Óheppilegt orðalag

Í tilkynningu sem lögregla sendi til fjölmiðla fyrir hádegi sagði: „Við yfirheyrslur játuðu konurnar að hafa sent umrætt bréf og var þeim sleppt að yfirheyrslum loknum.“

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að um óheppilegt orðalag sé að ræða.

„Þær komu kannski ekki báðar að því að póstleggja bréfið. En þær játuðu báðar aðild sína að málinu.“



Mannorðið í rúst

Lögreglan réðist í umfangsmiklar aðgerðir í tengslum við fjárkúgunina. Öllum fyrirmælum í bréfinu var fylgt og tösku komið fyrir á þeim stað sem mælt hafði verið fyrir um í bréfinu. Þar beið lögreglan.

„Á þessu augnabliki horfir maður á lífið sitt, sem maður er búinn að byggja upp og hafa mikið fyrir, að vera góður blaðamaður og standa sig í vinnu og vera trúverðugur, eiga traust fólks, eins og ég hef átt, yfir í það að vera einhvern veginn höfð að fífli. Dálítið blindaður af fjölskyldutengslum,“ segir Malín um handtökuna og bætir við: „Allt í einu er mannorðið bara farið af því að maður blandaðist inn í vitleysu.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×