Menning

BANDALOOP dansar á Aðalstræti 6

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Bandaríski dansflokkurinn BANDALOOP er kominn til landsins og hefur hafið æfingar á framhlið Aðalstrætis 6 við Ingólfstorg. Hópurinn mun flytja opnunarverk Listahátíðar í Reykjavík á húsinu á miðvikudag klukkan 17.30.

BANDALOOP hefur sýnt á þekktum byggingum víða um veröld svo sem á Kauphöllinni í New York, IFC turninum í Seoul, höfuðstöðvum IBM í Sao Paolo, Nálinni í Seattle og svo mætti lengi telja.

Loftdans eða lóðréttan dans mætti kalla það þegar dansað er á lóðréttum fleti, í línu líkt og í klettaklifri en BANDALOOP hefur sérhæft sig í slíkum dansi frá því á 10. áratug síðustu aldar undir listrænni stjórn Ameliu Rudolph.

Í lóðréttum dansi sameinast danstækni, líkamlegur styrkur og klifurtækni í magnaðri upplifun fyrir áhorfendur. Óhefðbundin tengsl við þyngdaraflið og náin tengsl við náttúruna eru leiðarstefið í verkum Ameliu Rudolph sem hefur leitt dansflokk sinn fram á ystu brún, í bókstaflegri merkingu, á skýjakljúfum og klettabjörgum víðs vegar um heiminn. Þannig teygir flokkurinn hugmyndir okkar um dans og útivist til hins ítrasta.

Á morgun, þriðjudag mun vera opin æfing kl.14.30 við Ingólfstorg og generalprufa kl.17.30. Strax að henni lokinni geta áhorfendur rætt við dansara og aðstandendur fyrir framan bygginguna.

Hér að neðan má sjá upptöku af því þegar tveir dansarar hópsins dansa á ráðhúsi Oakland í Kaliforníu.


Tengdar fréttir

Górillustelpur og klifurdans

Tveir heimsfrægir listhópar opna Listahátíð Reykjavíkur í ár með opnum viðburðum miðborginni sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×