Bíó og sjónvarp

Íslensk dagskrágerð í fyrirrúmi í vetur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dagskráin verður fjölbreytt í vetur.
Dagskráin verður fjölbreytt í vetur. vísir
Haustkynning Stöðvar 2 fer fram í Hörpunni í kvöld og verður kynnt til sögunnar þá dagskrá sem mun verða á stöðinni í vetur.

Íslensk dagskrágerð hefur sjaldan verið eins öflug og leggur Stöð 2 mikið upp úr henni. Enda er íslensk dagskrágerð sýnd á hverju einasta kvöldi í vikunni.

Hér að neðan er hægt að kynna sér þá þætti sem verða á dagskrá í vetur:  

Réttur – hefst 18.október

Serían er sú þriðja í röðinni en mjög frábrugðin fyrstu tveimur, Logi (Magnús Jónsson) og Brynhildur (Jóhanna Vigdís) eru enn í aðalhlutverkum en nú vinna þau ekki saman á lögfræðistofu heldur koma bæði að því að aðstoða við rannsókn á dauða 14 ára stúlku, Láru, sem finnst hengd í Þjóðleikhúsinu. Steinunn Ólína kemur inn ný í seríuna sem lögreglukonan Gabríela og með henni er Þorsteinn Bachman í hlutverki lögreglumannsins Högna. Baldvin Z leikstýrir seríunni sem var skrifuð af Þorleifi Arnarsyni og Andra Óttarssyni. Framleitt af Sagafilm.

Ísland got talent

Vinsælasti þáttur Stöðvar 2 síðustu ár snýr aftur þriðja veturinn í röð. Áheyrnarprufur hefjast 12.september og verða hringinn í kringum landið. Auðunn Blöndal kynnir sem fyrr og 10 milljónir í verðlaunafé. Alda Dís sem sigraði í vor hefur náð frábærum árangri á stuttum tíma með laginu „Rauða nótt“ en það var einmitt í fyrsta sæti á vinsældarlista Bylgjunnar og tónlist.is í þessari viku.

Atvinnumennirnir okkar

Auðunn Blöndal hittir íslenska atvinnuíþróttamenn á þeirra heimavelli víðs vegar um heiminn og kynnist því hvernig þeirra daglega líf er. Í þessari seríu hittir hann meðal annars Gylfa Sigurðsson landsliðsmann í fótbolta. Framleitt af Stórveldinu. Verður á dagskrá í nóvember og desember á Stöð 2.

Gunnar Nelson í Las Vegas

Sérþáttur þar sem Auðunn Blöndal fylgdi Gunnari Nelson til Las Vegas að berjast í júlí þar sem hann eftirminnilega pakkaði Bandaríkjamanninum Brandon Thatch saman í fyrstu lotu. Framleitt af Stórveldinu. Verður á dagskrá í lok nóvember á Stöð 2.

Neyðarlínan

Sigrún Ósk snýr aftur með þriðju seríu Neyðarlínunnar sem hefst í byrjun október á Stöð 2. Í Neyðarlínunni er tekið á þeim málum sem koma inn á borð til Neyðarlínunnar, símtölin spiluð og atburðir endurgerðir ásamt því að ræða við hlutaðeigandi hverju sinni. Í fyrra var tekið á málum eins og gassprengingu í verkfæraskúr og er markmið þáttanna meðal annars að áhorfendur geti dregið lærdóm af þeim. Neyðarlínan hefur verið með vinsælustu þáttum Stöðvar 2 síðustu ár og hlaut fyrsta serían tilnefningu til Eddu verðlauna.

Logi

Laufléttur og bráðskemmtilegur þáttur þar sem Logi Bergmann fer á kostum sem þáttastjórnandi. Hann fær til sín vel valda og skemmtilega viðmælendur og auk þess verður boðið uppá frábær tónlistaratriði og ýmsar óvæntar uppákomur.

Spilakvöld

Pétur Jóhann býður í partý á laugardagskvöldum á Stöð 2.

Hindurvitni

Nýir og metnaðarfullir heimildarþættir þar sem  Þorvaldur Davíð og Erik Sördalson kynna sér gamlar þjóðsögur og fræða okkur um álfa, tröll, drauga og aðrar vættir sem við þekkjum úr sögunum. Vandaðir þættir þar sem fræðsla, tækni, grafík og húmor spila saman.

Landnemarnir

Kristján Már mun fara með okkur í ferð um landið og tímann til þess að kynna okkur fyrir forfeðrum okkar. Hvaðan við komum og hvert við fórum. Við kynnumst öllum landnemum sem komu hingað og förum til Grænlands, Noregs og Ameríku í leit að svörum. Hefst í nóvember.

Á Uppleið og Heimsókn

Sindri heldur áfram með þessa tvo vinsælu þætti

Matargleði Evu

Eva galdrar fram rjómalagaða, gómsæta og einfalda rétti á fimmtudagskvöldum.

Eldhúsið hans Eyþórs

Eyþór Rúnarsson matreiðslumeistari sýnir listir sínar í eldhúsinu í nóvember og desember.

Lögreglan

Ásgeir Erlends skyggnist inn í störf lögreglunnar og fjallar um stór lögreglumál frá síðustu árum með sviðsetningum og viðtölum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×