Ný tónleikaröð með verkum Atla Heimis Gunnar Leó Pálsson skrifar 15. maí 2015 10:00 Brautryðjandi verk tónskáldsins Atla Heimis Sveinssonar verða í hávegum höfð í tónleikaröðinni. vísir/pjetur
Ný tónleikaröð með verkum Atla Heimis Sveinssonar er að fara af stað en fyrstu tónleikarnir í tónleikaröðinni fara fram í kvöld í Mengi. Tónleikaröðin, sem ber nafnið, Atli Heimir og árdagar framúrstefnunnar á Íslandi, heldur svo áfram í ágúst og verður síðasta föstudag í mánuði fram á vor. Brautryðjandi verk tónskáldsins Atla Heimis Sveinssonar verða í hávegum höfð í tónleikaröðinni en hún er samstarfsverkefni Mengis og Listaháskóla Íslands. Upphafstónleikarnir sem fram fara í kvöld munu þjóna sem kynning á seríunni í heild sinni, en á sama degi munu aðstandendur hátíðarinnar einnig hefja söfnun á Karolinafund til að fjármagna framhaldið á þessu metnaðarfulla verkefni. Frá og með ágústmánuði og fram í apríl 2016 mun síðasti föstudagur hvers mánaðar vera helgaður verkum Atla Heimis. Borgar Magnason, listrænn stjórnandi seríunnar, hefur unnið að heildar samantekt á höfundarverki Atla Heimis undanfarið ár. Við þá vinnu kom í ljós heilt ævistarf af verkum í framúrstefnu stíl sem samin eru á árunum fyrst eftir að Atli Heimir kynnist Stockhausen og evrópskri framúrstefnu. Það sem kemur helst á óvart við þessi metnaðarfullu og framúrstefnulegu verk hans er að sum hafa aldrei verið flutt, hvað þá tekin upp og mörg hver hafa ekki heyrst síðan þau voru frumflutt. Fjöldinn allur af gríðarlega vönduðum verkum bíður því flutnings en flutningur á úrvali þeirra er leiðarstefið í tónleikaröðinni, þó einleiks- og kammerverk frá öðrum tíma fái einnig að fylgja með.Borgar Magnason er listrænn stjórnandi seríunnar.vísir/valliÁ tónleikunum í kvöld í Mengi koma fram sannkallaðar kanónur á sínu sviði en það eru þau, Melkorka Ólafsdóttir þverflautuleikari, Arngunnur Árnadóttir klarinettleikari, Michael Kaulartz fagottleikari og Örn Magnússon er lesari. Þau verk sem flutt verða eru Trio für Bläser (1960) en um frumflutning er að ræða, Djúp er sorgin // Tief ist die Trauer (2002) fyrir einleiks flautu, Fönsun IV (1968) fyrir einleiks fagott, Dona nobis pacem (1983) fyrir einleiks klarinett og lesara. Eftirfarandi er í boði ef verkefnið er stutt í gegnum Karolinafund. Á sjötta og sjöunda áratugnum samdi Atli Heimir Sveinsson nokkurn fjölda tónverka sem skrifuð voru á óhefðbundinn, og oft á tíðum abstrakt, myndrænan hátt. Mörg verkin koma fyrir sjónir sem myndverk frekar en tónverk og var þetta tilraun Atla Heimis til að opna fyrir túlkun verkanna og fá flytjendur til að taka meiri þátt í sköpun þeirra. Eitt póstkort (þrykkt í letterpress) með teikningu eftir Atla Heimi Sveinsson, upp úr tónverkum hans Fönsun IV og Mengi. Pakki með fjórum póstkortum (þrykkt í letterpress) með teikningum eftir Atla Heimi Sveinsson, upp úr tónverkum hans Fönsun IV og Mengi. Silkiþrykk í takmörkuðu upplagi í stærðinni 28 x 40 cm af grafísku tónverki eftir Atla Heimi Sveinsson. Pakki með fjórum silkiþrykkum í stærðinni 28 x 40 cm í takmörkuðu upplagi af mynd-tónverkum eftir Atla Heimi Sveinsson. Silkiþrykkt sería af níu myndum úr tónverkinu For Boys and Girls eftir Atla Heimi Sveinsson samið fyrir SÚM hópinn árið 1967. Takmarkað upplag. Dagskrá opnunarhátíðarinnar Fyrirlestur: Um framúrstefnuna í höfundarverki Atla Heimis Sveinssonar. Fyrirlesari: Þráinn Hjálmarsson Staður og stund: Sölvhóll kl.13.00 Tónleikar: Trio für Bläser // Hljóðaljóð Staður og stund: Mengi við Óðinsgötu klukkan 21.00 (húsið opnað 20.00). Miðasala við innganginn.
Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Fleiri fréttir Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Sjá meira