Á ferð og flugi víðsvegar um Evrópu á þessu ári Gunnar Leó Pálsson skrifar 13. febrúar 2015 10:00 Andri Björn Róbertsson tekur þátt í sýningu sem er að gera það gott í Evrópu. vísir/stefán
Óperusöngvarinn Andri Björn Róbertsson tekur um þessar mundir þátt í sýningu sem kölluð er Trauernacht og er sett saman úr aríum, resitatífum, kórum og kórölum úr kantötum Bachs. Allt eru þetta trúarlegir textar sem fjalla á einhvern hátt um dauðann. „Þetta er í rauninni ekki óperuhópur, heldur er þetta sýning sem sett var upp á Festival d‘Aix en Provence í Suður-Frakklandi síðastliðið sumar, sem er ein stærsta óperuhátíð í heimi,“ segir söngvarinn Andri Björn Róbertsson. Í sýningunni eru fimm söngvarar, fjórir ungir (sópran, alt, tenór, bassi) sem eru fjögur systkini og einn eldri (bassi) sem leikur föður þeirra. „Sýningin fjallar um hvernig þessi fjögur systkini takast á við dauða föður síns og hafði mikil áhrif bæði á áheyrendur og okkur sjálf þegar við sýndum í Frakklandi síðastliðið sumar,“ segir Andri Björn. Hópurinn er á leiðinni með sýninguna til Amsterdam í Hollandi og Valence í Frakklandi. „Við förum svo síðan til Parísar í apríl, Bordeaux í september, Lissabon í nóvember og líklega til Óslóar og Kölnar vorið 2016,“ bætir Andri Björn við. Ekki liggur fyrir hvort sýningin komi til Íslands. Barokkhljómsveitinni stjórnar Raphaël Pichon, sem er ungur og upprennandi stjórnandi í klassíska heiminum. „Hann hefur að mínu mati snilligáfu í tónlist sem ekki er mörgum gefin.“ Katie Mitchell leikstýrði og er hún mjög virt í leikhúsheiminum, sérstaklega á meginlandinu. „Þau eru bæði mikið áhugafólk um Bach og settu þetta verkefni saman í samstarfi við tónlistarhátíðina.“ Andri Björn hefur búið og starfað í Zürich síðan í ágúst þar sem hann er í óperustúdíói óperuhússins. „Ég hef síðan komist að því að óperustúdíóið er meira eins og hópur ungra fastráðinna söngvara við óperuhúsið sjálft, því við syngjum öll þó nokkur hlutverk og erum einnig varamenn fyrir stærri hlutverk,“ segir Andri Björn. Hann er búinn að syngja þrjú hlutverk nú þegar; Der König í barnaóperunni Die Gänsemagd, Brabantischer Edle í Lohengrin og svo Sprecher í Töfraflautunni. „Auk þess hef ég verið varamaður fyrir Fígaró í Brúðkaupi Fígarós, þar sem ég þurfti að „stökkva inn“ í hlutverkið á generalprufunni, sem var mjög gaman og mikil reynsla. Svo verð ég varamaður fyrir Dulcamara í Ástardrykknum í júní. En þetta hefur verið mikil reynsla sem ég mun búa að.“ Næsta vetur verður hann þó ekki áfram í stúdíóinu, en óperuhúsið sjálft hefur boðið honum gestasamning fyrir tvö hlutverk, annars vegar í King Arthur eftir Purcell og í Töfraflautunni eftir Mozart. „Ég ferðast um með sýninguna frá Aix og síðan er eitt og annað að gerast og í startholunum.“
Mest lesið Getur siðblinda frá afanum dúkkað upp hjá barnabörnum? Áskorun GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði Lífið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Menning Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Lífið Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Lífið samstarf „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Lífið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Menning Hilmir Snær stígur einn á svið Menning Fleiri fréttir GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Sjá meira