Ballbann í MS vegna ölvunar nemenda Gunnar Leó Pálsson skrifar 12. mars 2014 08:30 Már Vilhjálmsson, rektor Menntaskólans við Sund, segir að ekki verði haldnir fleiri dansleikir á skólaárinu nema hlutirnir fari að breytast. Vísir/Stefán „
Ástæðan fyrir þessu dansleikjabanni er að okkur hefur fundist hlutirnir ekki hafa gengið nógu vel og það hefur verið allt of mikið um ölvun,“ segir Már Vilhjálmsson, rektor Menntaskólans við Sund. Mikil drykkja og önnur brot á árshátíð skólans sem fram fór í Gullhömrum fyrir skömmu fylltu mælinn og hefur því verið sett á svokallað dansleikjabann. „Þetta er kannski ekki dansleikjabann heldur frekar dansleikjahlé. Við ætlum að endurskoða hlutina og sjá hvernig þetta geti farið betur fram,“ bætir Már við. Mikilli ölvun fylgir oft ofbeldi. „Það er orðið regla að á öllum stórum dansleikjunum er ofbeldi og það er auðvitað ekki í lagi. Auðvitað viljum við heilbrigt og gott skemmtanalíf en við þurfum nýjar leiðir til að breyta þessu. Í núverandi ástandi get ég ekki tryggt öryggi nemendanna,“ útskýrir Már.Menntaskólinn við Sundfréttablaðið/stefánÍ kringum árið 2006 hætti skólinn að halda opin böll vegna þess að talið var að nemendur úr öðrum skólum væru orsök margra brota sem fram fóru á dansleikjum í þá daga. Að halda lokuð böll breytti þó litlu. „Ástandið breyttist lítið við þær breytingar.“ Á dansleikjum skólans eru þeir sem eru ölvaðir teknir inn í svokallað sjúkraherbergi og ef aðilinn er yngri en átján ára er hringt í foreldra og neminn sóttur. „Í heildina séð hagar meirihlutinn sér vel á böllum.“ Már segir þetta mikla synd, því þeir sem séu í formennsku nemendafélagsins, séu að vinna mikla vinnu og séu þetta því mikil vonbrigði. „Það er mikil vinna á bak við böllin. Við fundum alltaf fyrir dansleiki og förum yfir reglur og annað slíkt en þrátt fyrir alla þessa vinnu þá miðar okkur ekkert áfram,“ bætir Már við. Dansleikjabannið svokallaða verður í gildi út skólaárið en stjórnendur skólans ætla að reyna að finna lausn á vandanum með nemendum. „Við ætlum að finna það út með nemendum hvernig best sé að breyta þessu. Forsenda þess að það verði áframhald á dansleikjahaldi er að við finnum áhrifaríkari leiðir til að hafa hlutina í lagi.“ Fréttablaðið setti sig í samband við nokkra nemendur skólans og voru flestir hissa á þessari ákvörðun skólastjórnenda en ætluðu að hlíta þessum fyrirmælum.) )
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Sjá meira