„Við Hrönn ætlum að vera með dálítið blandað prógramm,“ segir Hallveig Rúnarsdóttir söngkona, þegar ég næ í hana á kaffihúsinu Bláu könnunni á Akureyri og bið hana að lýsa því sem fram undan er á Berjadögum á Ólafsfirði.
Hún verður þar í stóru hlutverki bæði á upphafstónleikunum annað kvöld klukkan 20 og lokatónleikunum á föstudaginn. Kveðst hafa verið með kabarettprógramm syðra fyrir nokkru en ákveðið að klassíkera það örlítið nú.
„Við bjóðum upp á Kabaríur. „Ætlum að dreypa á gylltum veigum óperubókmenntanna fyrir hlé og verðum með nokkrar stórar bombur eftir Mozart, Puccini og Dvorák.
Eftir hlé dembum við okkur í léttara efni og flytjum kabarettmúsík eftir Schönberg og bandarískan mann sem heitir Bolcom. Síðan verða söngleikjalög eftir Sondheim,“ lýsir hún.
Á öðru kvöldi tónleikanna fá þær Hallveig og Hrönn að njóta þess sem Tríó Sunnu Gunnlaugs hefur í farteskinu. Það verða aðallega tónsmíðar eftir liðsmenn tríósins og einhverjar ábreiður kunna að slæðast með.
Á lokakvöldinu á föstudag verður blásið til sannkallaðrar tónlistarveislu fyrir alla fjölskylduna þar sem listamenn hátíðarinnar leika á als oddi í fjölbreyttri dagskrá.
„Þá verð ég með í öllu havaríinu,“ segir Hallveig og kveðst geyma aríuna sína úr Carmen þangað til.
„Þar verður líka söngleikastjarna Íslands, Maríus Sverrisson, tríóið hennar Sunnu og hinir og þessir gestasöngvarar. Þetta verður rosa skemmtilegt,“ segir hún spennt.
Hallveig kveðst aldrei hafa sungið á Ólafsfirði áður en hún þekki þar fullt af fólki.
„Ég hef verið þar í fríum en aldrei komið þar fram. Ólafsfjörður er heimabær söngkennarans míns, Jón Þorsteinssonar, og þar líður honum best í heiminum. Hann er einn þeirra sem ætla að troða upp á lokakvöldi Berjadaga,“ segir Hallveig og heldur svo áfram ferðinni í fyrirheitna fjörðinn.
Dagskrá Berjadaga
KABARÍUR í Ólafsfjarðarkirkju 14. ágúst klukkan 20
Hallveig Rúnarsdóttir, sópran
Hrönn Þráinsdóttir, píanó
TRÍÓ SUNNU GUNNLAUGS í Ólafsfjarðarkirkju 15. ágúst klukkan 20
Sunna Gunnlaugs, píanó
Þorgrímur Jónsson, kontrabassi
Scott McLemore, trommur
Tríó Sunnu verður líka með tónleika á Hornbrekku, dvalarheimili aldraðra, klukkan 14.30
LOKATÓNLEIKAR BERJADAGA í Tjarnarborg 16. ágúst klukkan 20
Sérstakur gestur: Maríus Hermann Sverrisson tenór – „Ég er kominn heim“
Við bjóðum upp á Kabaríur
