ESB herðir viðskiptaþvinganir Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. júlí 2014 07:00 John Kerry Utanríkisráðherra Bandaríkjanna telur að rússnesk stjórnvöld hafi látið uppreisnarmenn hafa vopn. nordicphotos/afp
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun herða viðskiptaþvinganir gegn Rússum vegna deilunnar við Úkraínumenn. Viðskiptaþvinganirnar munu ná til verslunar með olíu og tæknivara. Þá er líklegt að takmarkanir verði settar á aðgang rússneskra ríkisbanka að erlendu fjármagni. Með þessu vill Evrópusambandið bregðast við stuðningi rússneskra stjórnvalda við uppreisnarmenn í austurhluta Úkraínu. Stjórnvöld í Rússlandi neita ásökunum Evrópusambandsins og Bandaríkjamanna um að Rússar útvegi uppreisnarmönnunum þungavopn. BBC, fréttastofa breska ríkisútvarpsins, sagði í gær að enn ætti eftir að greina frá smáatriðum varðandi viðskiptaþvinganirnar. Búist er við því að yfirlýsing um þær verði birt í dag. Þá muni Evrópusambandið greina frá því að eigur fleiri háttsettra rússneskra embættismanna verði frystar og þeim meinað að ferðast til Evrópu. Aukinn þrýstingur hefur verið settur á Evrópusambandið um harðari aðgerðir gegn Rússum eftir að malasísk farþegaþota var skotin niður í lofthelgi Úkraínu fyrr í mánuðinum. Tæplega 300 manns fórust með vélinni og voru flestir þeirra hollenskir ríkisborgarar. Stjórnvöld á Vesturlöndum telja að uppreisnarmenn hafi skotið vélina niður með rússnesku loftskeyti.-
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira