Gylfi Þór fær byrjunarliðssæti ekki gefins hjá Swansea Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júlí 2014 06:00 Gylfi Þór er kominn á kunnuglegar slóðir. Mynd/swanseacity.net
Sem kunnugt er gekk Swansea City frá kaupum á landsliðsmanninum Gylfa Þór Sigurðssyni frá Tottenham í fyrradag. Talið er að kaupverðið hljóði upp á 1,96 milljarða króna. Gylfi þekkir vel til hjá Swansea, en hann lék sem lánsmaður hjá velska liðinu seinni hluta tímabilsins 2011-2012. Gylfi átti góðu gengi að fagna með Swansea og skoraði sjö mörk í átján deildarleikjum og átti þrjár stoðsendingar. Í kjölfarið var hann keyptur til Tottenham á 1,7 milljarða króna. Gylfi lék 85 leiki með Tottenham í öllum keppnum og skoraði 13 mörk.Líður best inni á miðjunni Í samtali við Fréttablaðið sagðist Gylfi hafa upplifað bæði góða tíma og slæma hjá Lundúnaliðinu. „Ég átti margar góðar stundir hjá Tottenham og auðvitað er alltaf leiðinlegt að kveðja félag sem maður hefur notið þess að vera hjá. En ég tók þessa ákvörðun af fótboltalegum ástæðum,“ sagði landsliðsmaðurinn. Mikil samkeppni var hjá Tottenham, en á árunum tveimur á White Hart Lane þurfti Gylfi að berjast um stöður við leikmenn á borð við GarethBale, NacerChadli, LewisHoltby, Christian Eriksen og Paulinho. Hlutskipti Gylfa var því oft að spila á vinstri kantinum sem hann segir að henti sér ekki: „Eins og flestir vita líður mér best inni á miðjunni. Ég er ekkert þessi fljóta týpa á kantinum sem sprettar fram hjá bakverði og neglir fyrirgjöf inn á teiginn eins og Gareth Bale eða Andros Townsend,“ sagði Íslendingurinn og bætti við: „Ég er allt öðruvísi leikmaður. Vonandi fæ ég bara að spila sem númer tíu hjá Swansea eða sem númer átta inni á miðri miðjunni.“Baráttan við Shelvey Þegar Gylfi var hjá Swansea fyrir tveimur árum notaði BrendanRodgers, þáverandi þjálfari liðsins, hann oftast í stöðu framliggjandi miðjumanns (tíu), í leikkerfinu 4-2-3-1. Þótt Rodgers sé horfinn á braut hefur Swansea haldið áfram að spila þetta leikkerfi, bæði undir stjórn Michaels Laudrup og GarrysMonk sem tók við liðinu um mitt síðasta tímabil. Ljóst er að Gylfa er ætlað stórt hlutverk hjá Swansea, en það er ekki þar með sagt að hann eigi bókað sæti í velska liðinu. Brotthvarf Spánverjanna Michu, sem sló í gegn tímabilið 2012-2013, og AlejandroPozuelo í sumar er vatn á myllu Gylfa, en að öllum líkindum verður aðalkeppninautur hans um stöðu framliggjandi miðjumanns Jonjo Shelvey, sem gekk til liðs við Swansea frá Liverpool fyrir síðustu leiktíð. Shelvey átti fína leiktíð í fyrra og skoraði sex mörk og gaf sex stoðsendingar í 32 deildarleikjum. Gylfi er því ekki að glíma við neinn aukvisa. Pablo Hernández og Wayne Routhledge geta einnig spilað umrædda stöðu, en þeir eru meiri kantmenn en miðjumenn.Sama staða og hjá landsliðinu? Svo gæti einnig farið að Gylfi yrði notaður aftar á miðjunni, ekki ósvipað og hjá íslenska landsliðinu. Það ríkir nokkur óvissa um hverjir skipa þessar stöður hjá Swansea í vetur. Leon Britton hefur verið fastamaður hjá Swansea í áraraðir og er eins konar holdgervingur tikitaka-leikstílsins sem Swansea hefur spilað undanfarin ár. Britton verður áfram í lykilhlutverki hjá Wales-mönnunum. Suður-Kóreumaðurinn Ki Sung-Yueng er einnig kominn aftur til Swansea eftir að hafa verið í láni hjá Sunderland á síðustu leiktíð. Spánverjinn José Cañas hefur verið sagður á leið frá Swansea og þá er óljóst hvað verður um hollenska landsliðsmanninn JonathandeGuzmán, en hann hefur verið á láni hjá Swansea frá spænska liðinu Villareal undanfarin tvö ár.Aukin tækifæri Einhverjir leikmenn gætu komið og farið, en burtséð frá því ætti Gylfi Þór Sigurðsson að fá nóg af tækifærum hjá Swansea á næstu leiktíð. Og það er líklegra en ekki að hann fái að spila sínar eftirlætisstöður en ekki á vinstri kantinum eins og tilfellið var svo oft hjá Tottenham.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gylfi Þór orðinn leikmaður Swansea Skrifaði undir fjöggurra ára samning við velska félagið. 23. júlí 2014 18:50 Gylfi Þór: Erfitt að kveðja Tottenham Landsliðsmaðurinn í viðtali við Vísi eftir félagaskiptin til Swansea. 23. júlí 2014 20:56 Gylfi Þór dýrasti íslenski knattspyrnumaður sögunnar Íslenski landsliðsmaðurinn verið seldur fyrir samtals fimm milljarða króna. 22. júlí 2014 22:15 Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fleiri fréttir Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Sjá meira
Gylfi Þór orðinn leikmaður Swansea Skrifaði undir fjöggurra ára samning við velska félagið. 23. júlí 2014 18:50
Gylfi Þór: Erfitt að kveðja Tottenham Landsliðsmaðurinn í viðtali við Vísi eftir félagaskiptin til Swansea. 23. júlí 2014 20:56
Gylfi Þór dýrasti íslenski knattspyrnumaður sögunnar Íslenski landsliðsmaðurinn verið seldur fyrir samtals fimm milljarða króna. 22. júlí 2014 22:15