Verk Gunnars langt frá því að vera fullkönnuð Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 17. maí 2014 12:00 "Eitt af markmiðum okkar með málþinginu er að draga fram aðrar hliðar á Gunnari en hann er þekktastur fyrir,“ segir Skúli Björn Gunnarsson. Fréttablaðið/Gva Fréttablaðið/GVA
Skáld á ekki samleið með neinum… er yfirskrift málþings um Gunnar Gunnarsson í Norræna húsinu á morgun milli klukkan 13.30 og 17. Þann dag verða liðin 125 ár frá fæðingu skáldsins. „Þetta afmæli er gott tilefni til málþings,“ segir Skúli Björn Gunnarsson forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri. „Ekki síst vegna þess að hann Oskar Vistdal, rithöfundur og þýðandi, hefur nýlokið við bók um Gunnar og segir okkur frá henni. Þar dregur hann fram skemmtilega hluti sem ekki hafa verið skoðaðir áður, svo sem bréfaskipti Gunnars við norska höfunda eins og Einar Seim og Olaf Duun.“ Fleira áhugavert er á dagskrá þingsins. Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur fjallar um skandivisma skáldsins, Áskell Másson tónskáld segir frá glímu sinni við að semja Söngva um vorið sem eru innblásnir af Sonnettusveig Gunnars og Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur fyrsta hluta verksins. Róbert Haraldsson prófessor verður með hugleiðingu um síðasta skáldverk Gunnars og Kristján Jóhann Jónsson dósent talar um tvo heimsborgara. Að lokum mun Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur fjalla um barnasögur Gunnars sem voru myndskreyttar af sama teiknara í Bretlandi og myndskreytti sögur Enid Blyton. „Sennilega hefur skáldið hugsað þær fyrst bara fyrir strákana sína,“ giskar Skúli Björn á og segir þær enn einn vinkilinn á Gunnari Gunnarssyni. „Eitt af markmiðum okkar með málþinginu er að draga fram aðrar hliðar á Gunnari en hann er þekktastur fyrir. Það vantar ekki að menn geti haldið áfram að stúdéra Gunnar. Verk hans eru langt frá því að vera fullkönnuð.“ Um 30 þúsund manns koma í Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri á ári að sögn Skúla Björns. „Við reynum að haga hlutum þannig að þegar fólk fer frá Skriðuklaustri finnist því það þurfa að fara að lesa bók eftir Gunnar, hvort sem það hefur þekkt til hans áður eða ekki.“
Menning Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist Fleiri fréttir Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira