Kastað fram af svölum af tíundu hæð 18. maí 2014 10:00 Áslaug Perla Kristjónsdóttir var 21 árs þegar hún lést.
Áslaug Perla Kristjónsdóttir var 21 árs, fædd í janúar árið 1979. Föstudagskvöldið 26. maí árið 2000 hélt Áslaug Perla í gleðskap með vinum sínum og sneri aldrei aftur heim eftir þetta örlagaríka kvöld. Hún hitti mann í miðbæ Reykjavíkur eftir að skemmtistöðum bæjarins hafði verið lokað þetta kvöld og fannst látin skömmu síðar. „Hún var pínulítill snillingur, fljót að læra að lesa, ári á undan í skóla, ákveðin, þorin. Hún hafði þörf fyrir að skapa.“ Þetta segir Ragnheiður Kristjónsdóttir, systir Áslaugar Perlu, sem hefur aldrei tjáð sig um mál systur sinnar fyrr en nú.Áslaug Perla.Dagarnir í kjölfarið þungbærir „Manni finnst fyrsti dagurinn sem maður fréttir þetta ofsalega erfiður en þá veit maður ekki hvað á eftir að koma. Það sem kemur á eftir verður oft miklu erfiðara. Þá áttar fólk sig á því að þetta sé veruleikinn. Hún kemur ekkert aftur og fólk syrgir manneskjuna gríðarlega, líka hvað hefði orðið.“ Áslaug Perla lést eftir að hafa verið kastað fram af svölum á 10. hæð Engihjalla 9 þennan örlagaríka morgun. „Þau eru þarna eitthvað uppi og að mínu viti gerist eitthvað þannig að hann beitir hana einhverju valdi og hendir henni yfir svalirnar,“ segir Ragnheiður.Frá vettvangi.Eins og dómínó Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Ásgeir Inga Ásgeirsson í 14 ára fangelsi fyrir morðið á Áslaugu Perlu. Hæstiréttur þyngdi refsinguna um tvö ár. Málið hefur tekið mikið á móður Áslaugar Perlu sem hefur aldrei verið sátt við dóminn. 14 árum eftir morðið skrifar hún reglulega greinar um málið og þá þætti þess sem henni finnst þurfa að leiðrétta. „Ég veit ekki hvort nokkur skilji það þegar eitthvað svona gerist. Einhver sviptir aðra manneskju lífi og þá er þetta eins og dómínó, þú ert að eyðileggja allt í kringum þessa fjölskyldu. Þetta var ofsaleg sorg og ofsalegur missir. Það er erfitt að sætta sig við að svona gerist, eitthvað sem er algjör óþarfi og átti aldrei að gerast,“ segir Ragnheiður að lokum.Fjallað verður ítarlega um málið í þættinum Íslenskir ástríðuglæpir á Stöð 2 klukkan 20.50 á sunnudagskvöld.
Íslenskir ástríðuglæpir Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira