Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - Fylkir 1-3 | Fylkismenn komnir á blað Guðmundur Tómas Sigfússon í Eyjum skrifar 12. maí 2014 13:46 Brynjar Gauti Guðjónsson, miðvörður ÍBV. Vísir/Vilhelm
ÍBV þarf að bíða enn eftir fyrsta sigrinum eftir að Eyjamenn töpuðu fyrir botnliði Fylkis á Hásteinsvelli í kvöld.Jonathan Glenn kom reyndar ÍBV yfir strax á sjöttu mínútu en Fylkismenn voru fljótir að snúa leiknum sér í vil með mörkum Andrew Sousa og Gunnars Arnar Jónssonar.Andrés Már Jóhannesson innsiglaði svo sigurinn eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Þetta voru fyrstu stig og fyrstu mörk Fylkismanna í Pepsi-deildinni í sumar. ÍBV er með eitt stig eftir þrjár umferðir en Þórsarar eru nú eina liðið sem er enn án stiga. Leikurinn fór alls ekki rólega af stað en ljóst var að bæði lið ætluðu sér ekki færri en þrjú stig í kvöld. Glenn opnaði markareikning sinn hjá ÍBV með marki eftir sex mínútna leik í kvöld en þá fylgdi hann eftir skoti Víðis Þorvarðarsonar. Glenn hefur fengið mikla gagnrýni eftir fyrstu leiki mótsins en svaraði þeim gagnrýnisröddum í kvöld. Eftir að heimamenn komust yfir efldust gestirnir og áttu nokkur marktækifæri en á 18. mínútu skoraði Sousa mark beint úr aukaspyrnu, rétt við vítateigslínu. Sousa kom til liðsins fyrir mót en hann lék mjög vel í kvöld og var besti maður vallarins að mati Vísis. Fylkismenn léku á alls oddi næstu mínútur og þegar að Gunnar Örn fékk færi rétt utan vítateigs söng boltinn í þriðja skiptið í markinu en hann átti fast skot á nærstöng sem Abel Dhaira markvörður Eyjamanna réði ekki við. Næstu mínútur eftir markið voru rólegar en gestirnir áttu þó skalla í stöng. Leikmenn Fylkis létu Eyjamenn oft á tíðum líta illa út en þeir sýndu á sér allt aðrar hliðar en þær sem fengu að líta dagsins ljós í síðasta leik þeirra, gegn FH-ingum þar sem þeir steinlágu 3-0. Sadmir Zekovic kom einnig til liðsins fyrir mót en hann lék vel í sínum fyrsta leik i byrjunarliði. Skiptingar Eyjamanna hafa oft á tíðum valdið miklum usla hjá gestum Hásteinsvallar en í kvöld réðu Fylkismenn vel við þær og komust Eyjamenn ekki í mörg færi. Árbæingar áttu góða sókn undir lok leiksins en þá skoraði Andrés Már mark eftir að hann fékk boltann í teignum frá Zekovic. Andrés skaut boltanum upp í þaknetið en þá var öll von úti hjá heimamönnum. Ásmundur: Sérstaklega gott að vinna í EyjumÁsmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis.Vísir/Anton„Maður er alltaf ánægður að vinna og sérstaklega gott að vinna hér í Eyjum. Það er einnig gott að ná fyrstu mörkunum og fyrsta sigrinum,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, eftir sigur sinna manna gegn slökum Eyjamönnum í kvöld. „Mér fannst við byrja leikinn illa, en við vorum þá töluvert á eftir þeim og gáfum þeim of mikið pláss og tíma. Þeir komust verðskuldað yfir en ég er ánægður með hvernig menn svöruðu því. Þetta var nokkuð sannfærandi sigur.“ „Síðasti leikur var svona „one-off“ - hann var mjög slakur. Ef maður lítur aftur í tímann var þetta okkar langslakasti leikur og við viljum dvelja sem minnst við hann,“ bætti Ásmundur við en hann var gríðarlega ánægður með sína menn sem voru mun betri aðilinn í kvöld.Gunnar Örn: Kærkominn sigur „Þetta var gríðarlega mikilvægur leikur, það var að duga eða drepast fyrir okkur núna. Við vorum búnir að fara á erfiða útileiki í fyrstu leikjunum og erum búnir að fara á þrjá af fjórum erfiðustu útivöllum landsins. Þetta var því hrikalega kærkominn sigur,“ sagði Gunnar Örn Jónsson, leikmaður Fylkis, eftir fyrsta sigur mótsins hjá Árbæingum. „Við ætluðum að halda áfram að spila boltanum og ná að klára þetta. Það kom í lokin með glæsilegu marki hjá Adda.“ Fylkismenn steinlágu fyrir FH-ingum í Kaplakrika á fimmtudaginn en liðið spilaði mun betur í kvöld. „Við vorum með allt bókstaflega niður um okkur á móti FH, við vorum ekki tilbúnir í þann leik, hugsuðum okkar gang og fórum yfir málin og í dag leit þetta betur út.“ Brynjar Gauti: Þurfum að taka okkur áBrynjar Gauti GuðjónssonVísir/Vilhelm„Við þurfum alvarlega að fara að endurskoða sjálfa okkur og virkilega að fara að taka okkur á því að þetta er alls ekki nógu gott,“ sagði Brynjar Gauti Guðjónsson, leikmaður ÍBV, þungur á brún í leikslok. „Við byrjuðum ágætlega og náðum að setja á þá mark strax í byrjun. Þá var eins og menn héldu að þetta væri komið og að við þyrftum ekki að hafa fyrir þessu, þetta var skelfilegt.“ „Við ætluðum að byggja mótið á því að vera þéttir og ná svo að pota inn einum eða tveimur mörkum. Við fáum á okkur þrjú mörk hér á heimavelli og þurfum aðeins að fara að taka okkur á,“ sagði Brynjar að lokum en hann vildi meina að það ætti ekki að gerast að Eyjamenn væru ekki komnir með stig úr fyrstu tveimur heimaleikjum deildarinnar. Sigurður Ragnar: Þurfum að fara yfir og bæta okkar leikSigurður Ragnar Eyjólfsson.Vísir/Vilhelm„Við vorum að ræða hvað hefði mátt betur fara og það var nóg að tala um. Við spiluðum ekki vel í dag og þá sérstaklega ekki í fyrri hálfleik sem var slakur af okkar hálfu. Það var eins og við héldum að við myndum fá allt upp í hendurnar, ekkert lið getur leyft sér það,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, en hann hélt sínum mönnum í langan tíma inni í klefa eftir leik. Aðspurður hvort eitthvað jákvætt væri hægt að taka út úr leiknum nefndi Sigurður það að Jonathan Glenn hefði skorað sem væri jákvætt. „Hann hefur fengið útreið í fjölmiðlum, en það hefur ekki komið fram að hann var meiddur í þrjár vikur fyrir mót og er hann því eftir á í formi og er að verða betri og betri.“ „Leikirnir verða ekki léttari og eru FH-ingar með eitt af tveimur bestu liðum deildarinnar að mínu mati og verður það því mjög erfiður leikur. Við þurfum að fara yfir okkar leik og reyna að bæta hann fyrir leikinn gegn FH-ingunum.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Býður sig óvænt fram til forseta fyrst kvenna Sport Dortmund biðst afsökunar á að hafa gert grín að stamandi áhrifavaldi Fótbolti Sjáðu glæsimark Rashford gegn Newcastle og öll hin Fótbolti Littler laug því að hann væri hættur Sport Segir að United hafi keypt rangan markvörð: „Aldrei heyrt um hann“ Enski boltinn Óttast að Amorim verði rekinn ef illa fer gegn Chelsea Enski boltinn Atlético og UEFA rannsaka myndband af hrákanum Fótbolti Sveindís áberandi í nótt en sofnar í bíó Fótbolti „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Handbolti Potter undir mikilli pressu Enski boltinn Fleiri fréttir Fékk viljandi rautt og gæti misst af úrslitaleiknum „Maður spyr sig hvar maður á heppnina inni“ „Svekkjandi að við gefum þeim fjögur mörk“ „Sex til sjö leikmenn haltrandi inni á vellinum“ Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið John Andrews tekur við KR Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Ágúst hættir hjá Leikni Kallað eftir feitri sekt og tapi en Stjarnan þarf að greiða 150 þúsund KR geti fallið og Valur að trenda í öfuga átt Umspilið hefst í kvöld: „Fengum hjálp frá greiningardeildinni á Húsavík“ Leikirnir eftir tvískiptingu: Skagamenn fara á Ísafjörð, til Akureyrar og Eyja Segja áruna yfir röflandi Blikum slæma Líktu varnarleik KR við varnarleik fimmtugs old boys liðs Sjáðu hvernig ÍA lyfti sér af botninum og mörkin í Smáranum „Sérfræðingarnir sem hafa spáð okkur tólfta sætinu“ Lárus Orri: Fórum í „Fuck you mode“ Uppgjörið: ÍA - Afturelding 3-1 | Sigurganga Skagamanna heldur áfram Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-1 | Eyjamenn náðu ekki upp í efri hlutann Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Sjáðu mörkin úr mettapi KR Uppgjör: Valur - Stjarnan 1-2 | Stjarnan mætt af fullum þunga í titilbaráttuna „Hrikalega sáttur með þetta“ „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ „Búnir að æfa það að setja Sigurjón upp í senterinn“ Uppgjörið: KA - Vestri 4-1 | Frábær sigur dugði ekki til Uppgjörið: Valur - Tindastóll 6-2 | Fanndís fór hamförum Uppgjör: FHL - Breiðablik 1-5 | Breiðablik náði 11 stiga forystu á toppnum og felldi FHL um leið Uppgjörið: FH - Fram 2-2 | Dramatík í Krikanum Uppgjörið: KR - Víkingur 0-7 | KR-ingar niðurlægðir á heimavelli Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann