Slæmt aðgengi fyrir fatlaða kemur í veg fyrir að Freyja fagni með femínistum Kjartan Atli Kjartansson skrifar 19. júní 2014 14:19 Ekki geta allir fagnað á Hallveigarstöðum í dag.
Freyja Haraldsdóttir getur ekki tekið þátt í hátíðardagskrá Kvennréttindafélags Íslands, í tilefni kvenréttindadagsins. Hátíðin fer fram í húsnæði Kvenréttindafélagsins, að Hallveigarstöðum, og er aðgengi fyrir fatlaða ekki gott þar. Engin lyfta er fyrir hjólastóla og hátíðin fer fram í kjallara hússins, því getur Freyja ekki verið með í dag. „Mér finnst frekar erfitt að tala um þetta,“ segir Freyja sem segir að þarna rekist á tveir pólar í hennar lífssýn. „Ég er þakklát baráttu femínista en um leið er rosalega skrýtið að vera kona sem tilheyrir ekki þeim hópi. Það er skrýtið og flókið að geta ekki verið fötluð og verið kona á sama tíma.“ Freyja útskýrir orð sín þannig: „Fyrir mig sem konu er mikilvægt að geta barist fyrir jafnrétti kynjanna. Það er partur af minni sjálfsmynd. Mér finnst flókið að skilja að fötlun mín trufli mig í að taka þátt í þeirri baráttu. Það skerðir lífsgæði manns að geta ekki tekið þátt í þessu starfi.“Til stendur að bæta aðgengið Steinunn Stefánsdóttir er formaður Kvenréttindafélags Íslands. Hún segir leiðinlegt að aðgengi fyrir fatlaða sé ekki betra í húsinu, til stendur að bæta það, með nýrri lyftu fyrir hjólastóla sem verður komin upp fyrir næsta kvennadag, en þá verða 100 ár liðin frá því að konur fengu fyrst kosningarétt. „Lyftan er á framkvæmdaáætlun ársins. Hún mun kosta um tvær milljónir og hefði verið komin upp ef álagning fasteignagjalda hefði ekki breyst. Þau hækkuðu um milljón og við höfðum því ekki fjármagn til þess að festa kaup á svona lyftu,“ segir Steinunn. Hún segir Kvenréttindafélagið ekki taka lán fyrir þeim framkvæmdum sem þurfi að gera. „Reksturinn á húsinu er svona í anda hinnar hagsýnu húsmóður, við stofnum aldrei til skulda.“Vilja halda Hallveigarstöðum á lofti Rætt hefur verið um að hátíðardagskrá Kvenréttindafélagsins fari ekki farm á Hallveigarstöðum, á meðan aðgengi fyrir fatlaða er ábótavant. En Steinunn segir félagið vilja halda heiðri hússins á lofti. „Hallveigarstaðir eru kvennaheimili. Þrenn samtök kvenna eiga húsið – þetta er eina húsið í Reykjavík sem er í eigu kvenna.“ Hún segir að lengi hafi staðið til að bæta aðgengi fyrir fatlaða. „Umræðan um að bæta aðgengi fyrir fatlaða var hafin áður en gagnrýnisraddirnar fóru að hefjast. Auðvitað má segja að það sé sneipulegt að við höfum ekki kippt þessu í liðinn áður en raddirnar fóru að heyrast. En svona hlutir, eins og kaup á lyftu, gerast ekki bara einn tveir og þrír. Fyrst þegar umræðan hófst fór tími í að velta fyrir sér hvernig lyftu átti að fá. Nú erum við komin á þá lausn að kaupa einfalda hjólastólalyftu og það er komið á framkvæmdaráætlun ársins.“Láta í sér heyra í fimmtánda sinn Freyja segist þakklát fyrir að hjólastólalyfta verði komin í húsið fyrir næsta kvennadag. „En um leið er hægt að benda á að þetta er fimmtándi viðburðurinn sem haldinn er í húsinu eins og það er. Og við höfum alltaf látið í okkur heyra.“ Freyja á erfitt með að skilja af hverju aðgengið er ekki orðið betra nú þegar. „Fatlað fólk hefur verið lengi til. En maður reynir að horfa á þetta jákvæðum augum; horfa fram á veginn.“ Hún segir að það sé erfitt að láta í sér heyra vegna málsins. „Maður vill árangur í jafnréttisbaráttunni. En maður hefur á tilfinningunni að maður sé svolítið að spilal stemningunni með að benda á þetta slæma aðgengi. Mér finnst mikilvægt að bæta það sem fyrst, því það er jafnréttisbaráttunni mikill hagur í að allir geti tekið þátt í baráttunni. Konur og karlar eru ekki einsleitur hópur. Konur geta til dæmis verið hinsegin, gangkynhneigðar, trans, fatlaðar eða hvað sem er. Það á ekki að útiloka neinn hóp frá jafnréttisbaráttunni og þess vegna þarf að bæta aðgengi fatlaðra á Hallveigarstöðum – svo allir geti tekið þátt.“
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Innlent Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Sjá meira