Hjónabandið endaði með ástríðuglæp Ásgeir Erlendsson skrifar 25. maí 2014 12:00 Sorgarsaga ungrar fjölskyldu í Kópavoginum.
Á Íslandi ganga um 1.600 pör í hjónaband á ári hverju. Árið 2001 var ungt íslenskt par í þessum fjölmenna hópi. Allt lífið var fram undan og sambandið gekk eins og í sögu fyrst um sinn. Þau komu sér vel fyrir í lítilli íbúð og eignuðust tvö börn. Þremur og hálfu ári eftir gleðistundina upp við altarið hafði sigið á ógæfuhliðina í hjónabandinu sem endaði með ástríðuglæp. Aðfaranótt fyrsta dag nóvembermánaðar árið 2004 var lögreglan kvödd að fjölbýlishúsi í Kópavogi. Ung kona var látin og eiginmaðurinn játaði á staðnum að hafa banað konunni. Um var að ræða fjölskyldufólk sem lifði hefðbundnu lífi og var ekki í óreglu. Morðið var ástríðuglæpur, framið í stundarbrjálæði. „Oft er um að ræða ástríðuglæp milli maka eða fyrrverandi maka þar sem annar aðilinn kemst að því að hann hafi með einhverjum hætti svikinn, t.d. haldið fram hjá. Yfirleitt er um að ræða skyndilegar aðstæður sem koma gerandanum að óvörum. Fórnarlömbin hafa líka oft verið brotleg í sambandinu með einhverjum hætti.“ Þetta segir Anna Kristín Newton, réttarsálfræðingur.Ástríðuglæpir skera sig úr Ástríðuglæpir skera í sig mörgum tilfellum úr þegar bakgrunnur afbrotamannsins er skoðaður eins og var í tilfelli eiginmannsins í Hamraborg en hann hafði aldrei komið við sögu lögreglu og þótti fyrirmyndarborgari. „Oft er um að ræða einstaklinga sem öllu jöfnu hafa ekki verið að brjóta af sér með neinum hætti. Það er ólíkt því sem við sjáum hjá hinni hefðbundnu afbrotamanneskju sem er oft í margs konar brotum. Hún er í neyslu, brýst inn í bíla og stelur í búðum. Einstaklingar sem fremja ástríðuglæpi eins og við köllum þá eru oft bara venjulegt fólk."Anna Kristín Newton.Ellefu ára dómurEiginmaðurinn í Hamraborg var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur til níu ára fangelsisvistar en Hæstiréttur þyngdi dóminn um tvö ár. Foreldrum ungu konunnar fannst dómurinn yfir eiginmanninum í fyrstu vera léttvægur. „Okkur fannst það á sínum tíma vera lélegur dómur. Við hefðum viljað hafa hann mikið þyngri. Við missum stúlkuna og okkur fannst hann sleppa billega frá þessu. Hann hafði rétt á að sjá börnin hálfsmánaðarlega. Þá þurftum við alltaf að fara upp á Litla-Hraun í alls kyns veðrum og stundum leist okkur ekkert á blikuna. Með tímanum vorum við farin að vona að þetta yrði styttra. Þá yrði þetta ekki eins erfitt fyrir þau.“Ekkert einsdæmiDómurinn sem eiginmaðurinn í Hamraborg fékk er alls ekkert einsdæmi þegar kemur að íslenskum ástríðuglæpum. Í sambærilegu máli árið 1961 banaði maður eiginkonu sinni eftir að hún hrópaði nafn annars manns í rúmi þeirra og var sá dæmdur í sex ára fangavist. Þetta mál var einmitt haft til hliðsjónar í vörn mannsins. Árið 1992 var ung kona einnig dæmd í sex ára fangelsi fyrir að stinga unnusta sinn í stundarbrjálæði. Í öllum þessum málum þóttu sérstakar refsilækkunarástæður eiga við vegna aðstæðna.Fjallað verður ítarlega um málið og fleiri hliðum velt upp í lokaþætti Íslenskra ástríðuglæpa í kvöld klukkan 20.50 á Stöð 2.
Íslenskir ástríðuglæpir Mest lesið Chuck Norris er látinn Bíó og sjónvarp Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Lífið Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Lífið Gjörbreytti íbúðinni með einni tilfærslu Lífið Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Menning Misheppnaður mömmuleikur Gagnrýni Ástrós og Adam eiga von á öðru Lífið Magnús Hlynur í Efstaleitið Lífið Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Menning Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Alaska 1867 er nýliði ársins Ástrós og Adam eiga von á öðru Gjörbreytti íbúðinni með einni tilfærslu Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Magnús Hlynur í Efstaleitið Afroman fagnaði sigri gegn sjö lögregluþjónum Þegar kvikmyndagerðar- og tónlistarfólk kemur saman gerast ótrúlegir hlutir Helstu einkenni breytingaskeiðsins og mögulegar lausnir Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Hvað veistu um… Akureyri? Gæðastund með gæðablóðum Ástrós getur elskað fleiri en einn í einu: „Hvernig hefurðu tíma í þetta?“ Hollywood-stjarna blastar íslenskri hljómsveit „Mikilvægast að vera með hreina samvisku“ „Þetta var alltaf stóri draumurinn“ Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu „Jú, ég sá einhverja fræga“ Villi Neto skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Sjá meira