Vinnur að þróun lyfs gegn sykursýki eitt Haraldur Guðmundsson skrifar 21. júní 2014 10:00 Hákon hefur starfað við háskólasjúkrahúsið í Philadelphiu frá árinu 2006. Hann vann áður hjá Íslenskri erfðagreiningu. „
Næstu skref verða fólgin í að þróa lyf sem mun hemja afleiðingar stökkbreytingarinnar í geninu sem gerir það að verkum að líkaminn framleiðir ekki insúlín og sykursýki eitt þróast,“ segir Hákon Hákonarson, læknir og vísindamaður við háskólasjúkrahús Philadelphiu fyrir börn. Fyrr í vikunni kynntu Hákon og samstarfskona hans, Doris A. Stoffers prófessor við Háskólann í Pennsylvaníu, niðurstöður rannsóknar sem sýna að stökkbreyting í ákveðnu geni mannslíkamans hefur áhrif á framleiðslu og losun hans á insúlíni. Stökkbreytingin er því einn af orsakaþáttum insúlínháðrar sykursýki (sykursýki eitt). Hákon og samstarfsmenn hans fundu genið, CLEC16A, árið 2006 með viðamikilli rannsókn þar sem notast var við nýja skimunaraðferð sem gerði þeim kleift að skoða allt erfðamengi mannsins í einni rannsókn. „Þetta var algjörlega óþekkt gen á þeim tíma. Það vakti áhuga því eggjahvítuefni sem það myndar stýrir orkubúskap brisfrumna í gegnum samspil við annað eggjahvítuefni sem heitir parkin. Það efni örvar drápsfrumur (e. natural killer cells) sem eyða brisfrumum líkamans þegar sykursýki þróast,“ segir Hákon. Hann fékk í kjölfarið rannsóknarstyrk til að framkvæma tilraunir þar sem músum var gefið ákveðið krabbameinslyf sem gerir genið óvirkt. Stöðvaðist þá insúlínframleiðsla dýranna og þau fengu sykursýki. „Nú þurfum við einungis að þróa meðferð til að hemja þetta gen og eggjahvítupróteinið sem það framleiðir. Ef við getum það þá getum við komið í veg fyrir að insúlínframleiðsla líkamans truflist. Það er næsta skref hjá okkur.“ Lyfið sem Hákon vill þróa gæti þó ekki gagnast þeim sem þegar eru með insúlínháða sykursýki því í þeim tilvikum er búið að eyða öllum brisfrumum líkamans. „Það myndi aftur á móti vonandi geta gagnast þeim sem hafa þetta stökkbreytta gen í fyrirbyggjandi skyni. Stökkbreytinguna má finna með einföldu genaprófi þar sem niðurstöðurnar fást samdægurs,“ segir Hákon.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira