Ónýti málatilbúnað í hlerunarmálum Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 28. júní 2014 00:01 Nokkur tilfelli hafa komið upp að undanförnu þar sem staðfest er að rannsóknaraðilar hafa hlerað símtöl verjenda og sakborninga. „
Þessi hægagangur er ekki ásættanlegur,“ segir Jónas Þór Guðmundsson, formaður Lögmannafélags Íslands. Stjórn félagsins óskaði eftir fundi með ríkissaksóknara þann 16. apríl 2013 til að ræða framkvæmd símahlustunar og eyðingu upplýsinga þegar um samtöl lögmanna og sakborninga væri að ræða. Félaginu barst svar frá embættinu daginn eftir þar sem fram kom að ekki væri tímabært að funda sérstaklega vegna þessa. Jónas greinir frá þessu í grein sem hann skrifar í nýjasta tölublað Lögmannablaðsins. Í svarinu hafi komið fram að ríkissaksóknari myndi á næstu vikum upplýsa félagið um tilhögun eftirlits embættisins með hlustunum og breytta framkvæmd á því sviði. Frá því að þetta svar barst hefur erindið tvisvar verið ítrekað án svars frá ríkissaksóknara. „Ég staðfesti það, við höfum ekkert heyrt í þeim,“ segir Jónas.Í grein sinni segir Jónas að svör ríkissaksóknara við spurningum blaðamanna í tilefni nýgengins dóms í Imon-málinu, þar sem dómarar töldu sérstakan saksóknara hafa gerst brotlegan við lög með því að hlera símtöl verjenda og sakborninga, veiti því miður ekki skýrar vísbendingar um hvort brugðist hafi verið við ábendingum og kvörtunum með breytingum, og þá hverjum, um þessi mál. Jónas segir að með núgildandi fyrirkomulagi sé hugsanlegt, og reyndar líklegt, að rannsakandinn hafi komist yfir upplýsingar sem gagnist við rannsókn mála og málsókn, enda þótt þær verði ekki notaðar beinlínis sem sönnunargögn í sakamáli. Hann segir þetta allt benda til þess að bæði framkvæmd símhlustunar og eftirlit með henni sé ófullnægjandi.Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknariÞá leggur Jónas í grein sinni í dæmaskyni til þrjár leiðir til úrbóta. Hann segir að að því er eftirlitið snerti hafi ríkissaksóknari sjálfur bent á að embættið hafi vart burði vegna fjárskorts til að sinna því, að minnsta kosti svo vel sé. „Þetta er staðan eins og hún blasir við okkur,“ segir Jónas í samtali við Fréttablaðið. Hann segir að lokum að verði ekki gerðar úrbætur á bæði framkvæmd símahlustunar og eftirliti með henni blasi við að eina raunhæfa aðhaldið felist í því að dómstólar ónýti málatilbúnað ákæruvaldsins þar sem í ljós komi að símtöl sakbornings og verjanda hafi verið hlustuð. Komi aðhaldið ekki frá dómstólunum sjálfum sé óhjákvæmilegt að breyta lögum. Ríkissaksóknari hefur ekki svarað fyrirspurnum Fréttablaðsins um þetta mál.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira