Hulda Hlín sýnir á Seltjarnarnesi 22. maí 2014 13:30 Hulda Hlín Litadýrð sem opnar hugræna heima.
Hulda Hlín Magnúsdóttir, opnar í dag klukkan 17 myndlistarsýninguna Hugrænir litheimar í Eiðisskeri, sýningarsal Bókasafns Seltjarnarness. Á sýningunni má sjá olíumálverk og teikningar þar sem draumkenndri veröld í sterkum litum bregður fyrir. Olíumálverkin eru flest stór í sniðum og sum verkin eru innblásin af íslenskri náttúru en litir og form breyta þeim í annan og hugrænni stað, að því er fram kemur í tilkynningu. Hulda Hlín Magnúsdóttir ólst upp í Kaupmannahöfn, París og Reykjavík og nam málaralist í Flórens, Feneyjum, Bologna og Róm. Hún útskrifaðist í málaralist með hæstu einkunn og láði frá Accademia di Belle Arti í Róm og hefur haldið einka- og samsýningar hérlendis og á Ítalíu. Hulda Hlín lauk mastersnámi í listasögu frá Bolognaháskóla með mastersritgerð á sviði litafræði og merkingarfræði hins sjónræna. Sýningin verður opin frá mánudegi til fimmtudags frá klukkan 10 til 19 og á föstudögum frá klukkan 10 til 17.
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira