Manchester City missti niður 2-0 forystu í Moskvu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2014 12:48 Rússarnir fagna hér jöfnunarmarkinu sínu. Vísir/AFP
Englandsmeistarar Manchester City tapaði dýrmætum stigum í Meistaradeildinni í fótbolta í Moskvu í dag þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við heimamenn í CSKA Moskvu í kuldanum í Rússlandi. Manchester City var í mjög góðum málum í hálfleik eftir að Sergio Agüero og James Milner komu liðinu í 2-0 í fyrri hálfleiknum. Það stefndi því í öruggan útisigur en annað kom á daginn. Varamaðurinn Seydou Doumbia var örlagavaldur City-liðsins því hann var maðurinn á bak við bæði mörk rússneska liðsins í seinni hálfleiknum en þau komu bæði á síðustu 26 mínútunum. Seydou Doumbia skoraði fyrra markið sjálfur á 64. mínútu laglegt spil og fiskaði síðan vítaspyrnu á 86. mínútu sem Bibras Natkho nýtti og jafnaði metin í 2-2. Sergio Agüero kom Manchester City í 1-0 á 29. mínútu eftir óeigingjarna stoðsendingu frá Edin Dzeko og Agüero lagði síðan upp mark fyrir James Milner á 38. mínútu. Manchester City hefur nú 4 stig eftir þrjá fyrstu leiki sína eða jafnmörg stig og Roma. Ítalska liðið er með fjögurra marka forskot á City auk þess að eiga inni heimaleik á móti toppliði Bayern München í Rómarborg í kvöld.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland | Strákarnir okkar í Tókýó Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Körfubolti Fleiri fréttir Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Japan - Ísland | Strákarnir okkar í Tókýó Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Sjá meira