Úkraínuforseti segir Rússa hafa ráðist inn í Úkraínu Atli Ísleifsson skrifar 28. ágúst 2014 10:22 Petro Pórósjenkó Úkraínuforseti hefur aflýst ferð sinni til Tyrklands vegna ástandsins í austurhluta Úkraínu. Vísir/AFP
Petro Pórósjenkó Úkraínuforseti hefur aflýst heimsókn til Tyrklands vegna rússneskra hermanna í austurhluta landsins. Pórósjenkó sagði nauðsynlegt að hann væri í höfuðborginni Kíev vegna versnandi ástands í Donetsk-héraði. „Innrás rússneskra hermanna hefur átt sér stað.“ Pórósjenkó hefur beðið Evrópusambandið um hernaðaraðstoð vegna innrásarinnar. Alexander Zakharchenko, leiðtogi aðskilnaðarsinna í Úkraínu, fullyrðir að milli þrjú og fjögur þúsund rússneskir hermenn hafi gengið til liðs við aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Zakharchenko segir að margir Rússanna séu fyrrverandi hermenn eða núverandi hermenn í leyfi. Zakharchenko greindi frá þessu í samtali við rússneska fjölmiðla í borginni Novoazovsk sem aðskilnaðarsinnar náðu nýverið á sitt vald. Þá hótaði hann því að leggja undir sig borgina Mariupol, mikilvæga hafnarborg við Asovhaf. Ný víglína virðist því hafa myndast í suðausturhluta landsins. Talsmenn úkraínskra stjórnvalda segja rússneska hermenn hafa haldið yfir landamærin og styðja við bakið á aðskilnaðarsinnum, en rússnesk yfirvöld hafa hafnað slíkum ásökunum.Í frétt BBC segir að grunur leiki á að Rússar vilji nú beina úkraínskum hersveitum frá borgunum Donetsk og Luhansk og í norðurátt, en Úkraínumenn hafa endurheimt stór svæði úr hönum aðskilnaðarsinna síðustu vikur.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira