Enski boltinn

Monk hrósaði Gylfa í hástert

Garry Monk.
Garry Monk. Vísir/Getty
Garry Monk, þjálfari Swansea, hrósaði Gylfa Þór Sigurðssyni í hástert eftir 4-0 sigur gegn Plymouth í dag.

Gylfi spilaði sinn fyrsta leik eftir að hafa gengið í raðir Swansea í vikunni og stóð sig frábærlega þær 25 mínútur sem hann spilaði. Hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.

„Gylfi er frábær leikmaður og hann er leikmaður sem ég vildi fá í allt sumar og það tókst. Hann er betri núna en síðast þegar hann var hérna," sagði Gary Monk, þjálfari Swansea.

„Hann kom inn og átti góðan leik. Hann kemur inn með gæði í okkar hóp, eins og við vildum. Það hefur hjálpað honum að hann hefur verið hér áður og hann þekkir mig vel einnig sem mun hjálpa honum."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×