Sport

Búrið með Bubba: Hitað upp fyrir bardaga Gunnars Nelson í kvöld

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson berst við ZakCummings á UFC-kvöldi í Dyflinni á Írlandi á laugardagskvöldið, en bardaginn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Eins og alltaf hitar Bubbi Morthens upp fyrir bardagann í þættinum Búrið, sem sýndur verður á Stöð 2 Sport klukkan 19.50 í kvöld.

Þar fær Bubbi sérfræðingana SveinKjarval, UnnarKarlHalldórsson og Bjarka Þór Pétursson í heimsókn og munu þeir leiða áhorfendur í allan sannleikann um mótherja Gunnars og möguleika þeirra beggja í bardaganum.

„Þau ykkar sem eru ekki búin að fá sér áskrift; ég myndi flýta mér. Síðan myndi ég taka kvöldið frá og helst ekkert mikið að fara á klósettið eða stíga upp úr sófanum,“ segir Bubbi Morthens í stiklu fyrir þáttinn sem sjá má hér að ofan.

Gunnar Nelson mætir Zak Cummings í Dublin á laugardagskvöld.  Þessi stórbardagi verður í beinni á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 19:00.  Fáðu þér áskrift á www.365.is.

MMA

Tengdar fréttir

Upphitun fyrir bardaga Gunnars og Cummings | Myndband

Eftir viku mætast þeir Gunnar Nelson og Bandaríkjamaðurinn Zak Cummings á UFC bardagakvöldi í O2 Arena í Dublin. Bardaginn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin kl. 19:00.

Bakvið tjöldin fyrir síðasta bardaga Gunnars

Gunnar Nelson berst sinn fjórða UFC bardaga á laugardaginn þegar hann mætir Bandaríkjamanninum Zak Cummings. Vísir mun fylgja Gunnari vel eftir í aðdraganda bardagans líkt og síðast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×