Innlent

Sömdu lag fyrir Dag: Vilja meira fé í menningu og listir

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Hvetja Dag, t.v., til þess að leggja áherslu á menningu. Þrjár Basískar, í forgrunni myndar, röppuðu, undir lagi Harmoníu Sjarmoníu, fyrir aftan á mynd.
Hvetja Dag, t.v., til þess að leggja áherslu á menningu. Þrjár Basískar, í forgrunni myndar, röppuðu, undir lagi Harmoníu Sjarmoníu, fyrir aftan á mynd.
Stöðugildum í Skapandi sumarstörf, verkefnis á vegum Hins hússins sem gefur ungu fólki tækifæri á að skapa list yfir sumartímann, hefur fækkað um fjörutíu og átta á tíu árum. Þannig voru nú aðeins tuttugu ungmenni ráðin í ár miðað við sextíu og átta árið 2004.

Tveir listhópar sem starfa nú í sumar tóku sig til í gær á afmælisdegi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og sömdu fyrir hann lag og færðu honum gjöf. Þannig vilja þau hvetja hann til þess að halda áfram með starfið og leggja meira fé í það.

„Við vörðum deginum þann dag í Dag,“ segir Blær Jóhannsdóttir, hún er í listahópnum Þrjár Basískar sem samdi rapp handa borgarstjóranum við lag hópsins Harmonía Sjarmonía. 

Skapandi sumarstörf mikilvæg fyrir þjóðfélagið

„Við erum að reyna að sýna okkur og vekja athygli á okkur. Hann er náttúrulega borgarstjóri núna og það er mikilvægt að hann sé meðvitaður um okkur og hvað við getum gert,“ útskýrir Blær. Þrjár Basískar og Harmonía Sjarmonía eru tveir listahópar af níu í Skapandi sumarstörfum á vegum Reykjavíkurborgar. Hóparnir telja verkefnið sem er á vegum Hins hússins mikilvægt fyrir þjóðfélagið. „Þetta er mikilvægt til þess að gefa ungum listamönnum stökkpall til að rannsaka sína eigin list og þroskast sem listamenn. Fara út fyrir þægindarammann, gera mistök en líka að fá þessa viðurkenningu að fá borgað fyrir að skapa list.“ Ómetanlegt telja þau að fá að sjá um allt sköpunarferlið frá upphafi til enda, koma með hugmynd, semja atriði, flytja það, auglýsa sig og starfa sjálfstætt. „Sérstaklega á Íslandi þar sem maður þarf að koma sér sjálfur á framfæri.“ 

Hóparnir hvetja Dag til þess að leggja aukið fjármagn, ekki aðeins í Skapandi sumarstörf, heldur í listir og menningu almennt. „Ekki gleyma okkur,“ biðlar Blær til borgarstjórans kímin en alvarlegur undirtónn er í orðum hennar. „Hópum í Skapandi sumarstörfum hefur farið fækkandi og fjármagn lækkandi, það er ekki verið að leggja mikla áherslu á menninguna.“ 

Ása Hauksdóttir sér um menningarmál í Hinu húsinu.
„Þetta er vagga upprennandi listamanna.“

Ása Hauksdóttir, deildarstjóri hjá Hinu húsinu, segir að vanalega hafi verið um fjörutíu til fimmtíu stöðugildi að ræða en þeim hafi fækkað síðastliðin ár. Auk þeirra 20 sem fengu störf í ár var veitt aukafjárveiting fyrir fimm stöðugildum fyrir sautján ára ungmenni. Fyrst var auglýst eftir umsóknum í Skapandi sumarstörf árið 2000 og segir hún hundruði sækja um stöðu ár hvert. „Þarna hafa okkar helstu listamenn þjóðarinnar fengið að stíga sín fyrstu skref.“ Nefnir hún nöfn á borð við hljómsveitirnar Agent Fresco og Of monsters and men auk leikara sem þekktir eru í dag, Ilmur Kristjánsdóttir, Ólafur Egill Egilsson og Stefán Hallur Stefánsson. „Þetta er vagga upprennandi listamanna.“

Hér að neðan má sjá myndbandið sem hóparnir gáfu Degi. Í hópnum Þrjár Basískar eru Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir, Blær Jóhannsdóttir og Steiney Skúladóttir en í Harmoníu Sjarmoníu eru Agnes Björgvinsdóttir, Birgir Steinn Theodórsson, Höskuldur Eiríksson, Reynir Hauksson og Sólveig Morávek.

Textinn á laginu er birtur fyrir neðan myndbandið.



 
Þessar krúttlegu krullur kveikja í mér

hver maður sér Dagur B að þú

lýsir upp borgina og sópar burtu sorgina

bragur þinn er hagur minn og okkar allra

kvenna og karla

3 basískar bjalla

Það er 19. júní það er rigning og rok

I’ll be your princess you be my frog?

Þessi fallegi Dagur er svo fagur og klár

fer úr að ofan og það myndast fjölmiðlafár

Konur hafa getað kosið í næstum 100 ár

en fögnum því hvað Dagur B er með fallegt hár

Þrár mínar kvikna held að ég springi

brillerar í borginni ekki á þingi æfði sig,

öðlaðist orðkynngi og hætti alveg sjálfur að tala í hringi

Draumaprinsinn í læknasloppnum

gnæfir yfir tjörninni efst á toppnum

Hefðir átt að fara í herra heim

Óli Geir hefði ekki átt séns né geim

Frægari en páfinn í þremur löndum

situr í húsi umkringdur öndum í liði með honum

og öðrum samlöndum við helvítis húsnæðisvandanum gröndum

Kæri Dagur fækkaðu nú fötum gleymum vandamálunum á Reykjavíkurgötum. Dagurinn í dag er dagurinn þinn Dagur B þú ert borgarstjórinn minn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×