Innlent

Fikt tólf ára drengs olli brunanum í Rimaskóla

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi í gær.
Frá vettvangi í gær. Vísir/Vilhelm
Rannsókn lögreglu á brunanum í færanlegum kennslustofum við Rimaskóla í Reykjavík í gær er lokið.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að eldurinn hafi kviknað eftir að tólf ára drengur fiktaði með eld. Ekki hafi verið um ásetning að ræða heldur hafi eldur kviknað fyrir slysni.

Lögregla hefur rætt við drenginn og foreldra hans með aðstoð barnaverndaryfirvalda.


Tengdar fréttir

Mikill eldur í Rimaskóla

Nemendur í skólanum voru úti í frímínútum þegar eldurinn kviknaði og lagði fjöldi barna leið sína í átt að skúrnum til að fylgjast með því sem fyrir augu bar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×