Mikill eldur í Rimaskóla Stefán Árni Pálsson skrifar 28. apríl 2014 11:31 visir/vilhelm
Mikill eldur kom upp í Rimaskóla í Grafarvogi rétt fyrir tólfleytið í dag. Eldurinn kom upp í mannlausu húsnæði sem stendur við skólann. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var skúrinn, sem sjá má á myndinni að ofan, mannlaus þegar eldurinn kom upp. Hann ku ekki vera í notkun. Nemendur í skólanum voru úti í frímínútum þegar eldurinn kviknaði og lagði fjöldi barna leið sína í átt að skúrnum til að fylgjast með því sem fyrir augu bar. Kennarar náðu þó fljótlega að skerast í leikinn og voru allir nemendur fluttir í íþróttasal skólans. Slökkviliðinu tókst að ná tökum á eldinum fljótlega en mikill reykur barst í átt að skólanum og inn í einhverjar skólastofur. „Þetta var rosalegur eldur og eðlilega skapaðist nokkur hræðsla á meðal nemenda skólans,“ sagði starfsmaður Rimaskóla í samtali við Vísi, skömmu eftir að eldurinn kom upp. „Sem betur fer er í góðu lagi með alla nemendur og það er það sem skiptir máli." Búið er að senda tölvupóst til foreldra barna í skólanum þar sem fram kemur að ekki þurfi að sækja börnin. Búið sé að reykræsta þær stofur þangað sem reykur barst og skólahald muni halda áfram.Ef lesendur Vísis hafa nánari upplýsingar eða myndir frá vettvangi þá er bent á tölvupóstfangið ritstjorn@visir.is.visir/vilhelmmynd/aðsendvisir/vilhelmvisir/vilhelmvisir/vilhelm
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira