Lífið

„Þú ert komin með fjögur glæsi­leg Já!“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Annar undanúrslitaþátturinn af Ísland Got Talent verður sýndur á Stöð 2 á sunnudagskvöldið. Sjö atriði af ýmsum toga keppa um atkvæði þjóðarinnar til að eiga möguleika á að komast í úrslitaþáttinn og vinna tíu milljónir króna. 



Laufey Lín spilar á píanó og syngur í undanúrslitunum. Við kynntumst henni aðeins betur.

Fullt nafn: Laufey Lín Jónsdóttir

Aldur: 14 ára

Símanúmer til að kjósa hana í Ísland Got Talent: 900-9504



Af hverju á fólk að kjósa þig?

Til að hjálpa draumi mínum að rætast.



Hver er draumurinn?

Að verða söngkona og tónlistarmaður og ferðast um heiminn.



Uppáhaldslistamaður/menn?

Erfitt að velja, en Ella Fitzgerald, Alicia Keys, Beyonce og Jacqueline Du Pre standa upp úr þessa dagana.



Hvaða minning stendur upp úr úr Ísland Got Talent?

Þegar Þórunn Antonía sagði „Þú ert komin með fjögur glæsileg Já!“



Jón Jónsson eða Þórunn Antonía?

Það er ómögulegt að velja, þau eru bæði í miklu uppáhaldi hjá mér!


Tengdar fréttir

Þau keppa næsta sunnudag

Hér má sjá keppendurna sem bítast um að verða á meðal þeirra sem keppa um tíu milljónirnar í hæfileikakeppninni Ísland got Talent.

Keppendur skelltu sér í bíó

Mikil stemning var í hópnum og allir ánægðir með myndina One Chance enda ekki annað hægt því myndin er frábær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×