Erlent

Vísbendingar um að vélin hafi snúið við

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Malasískir leitarmenn að störfum.
Malasískir leitarmenn að störfum. vísir/afp
Vísbendingar eru um að flugvél Malaysia Airlines sem saknað er hafi verið snúið við og flogið vísvitand í átt að Andaman-eyjum í Indlandshafi. Þetta styðja gögn úr ratsjárbúnaði en Indlandshaf liggur vestur af Malasíu.

Flugvélin hvarf af ratsjá yfir Suður-Kínahafi, sem liggur austur af Malasíu. Aðeins er byggð á 37 af þeim 572 eyjum sem tilheyra Andaman-eyjum. Flestar tilheyra þær Indlandi.

Hishammuddin Hussein, settur samgönguráðherra Malasíu, staðfestir að leitarsvæðið hafi verið stækkað og nú sé leitað á Indlandshafi. Hann segir að einnig séu vísbendingar um að flugvél hafi snúið við frá Suður-Kínahafi en ekki er víst hvort um týndu flugvélina sé að ræða.

Lögregla í Malasíu rannskar nú hvort að um viljaverk hafi verið að ræða og útilokar ekki hryðjuverk. Hussein vildi ekki staðfesta það á blaðamannafundi að vélin hafi verið á flugi nokkrum klukkustundum eftir að hún hvarf af ratsjá.

Í dag er vika liðin frá hvarfi flugvélarinnar. Hún missti samband við flugturn um klukkan hálf tvö aðfaranótt laugardags, eða um klukkan hálf sex á föstudegi að íslenskum tíma. 239 voru um borð.


Tengdar fréttir

Hugsanlegar leifar þotunnar fundnar

Yfirvöld í Víetnam hafa staðfest fund leitarflugvélar á leifum sem að gætu tengst týndri farþegaþotu Malaysia Airlines.

Farþegaflugvélin breytti um stefnu

Týnda Boeing-farþegaflugvélin í Malasíu breytti um stefnu. Samkvæmt ratsjá var hún komin hundruð kílómetra frá því svæði sem síðast var vitað um ferðir hennar. Ekkert er vitað um ástæðuna fyrir þessari dularfullu stefnubreytingu vélarinnar.

Ekkert bendir til hryðjuverka

Mennirnir tveir sem fóru með stolin vegabréf um borð í flugvél Malaysia Airlines, sem hefur verið saknað frá því á laugardag, eru taldir hafa ætlað að flytja til Evrópu.

Óttast að 239 séu látnir

Forsætisráðherra Malasíu segir of snemmt að kalla hvarf farþegaþotunnar í dag hryðjuverk.

Áhættuleikari í horfinni flugvél

Áhættuleikari sem hafði leikið í slagsmálamyndum á borð við The Grandmaster var á meðal farþega í flugvél Malaysia Airlines sem hvarf á laugardaginn.

Farþegavél hvarf af ratsjá

Víðtæk leit stendur yfir á Suður- Kínahafi að farþegaþotu Malaysian Airlines sem hvarf af radar í gærkvöldi. 239 manns voru um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×