Erlent

Áhættuleikari í horfinni flugvél

Freyr Bjarnason skrifar
Jun Kun var um borð í flugvélinni sem hvarf.
Jun Kun var um borð í flugvélinni sem hvarf. Mynd/AP
Áhættuleikari sem hafði leikið í slagsmálamyndum á borð við The Grandmaster var á meðal farþega í flugvél Malaysia Airlines sem hvarf á laugardaginn.

Jun Kun hafði einnig unnið við kvikmyndina The Forbidden Kingdom með Jackie Chan í aðalhlutverki og átti að hefja vinnu við sjónvarpsþættina Marco Polo, samstarfsverkefni framleiðandanna Weinstein Co. og Netflix, í myndveri í Malasíu.

„Við erum mjög sorgmædd yfir fréttunum um flug 370 hjá Malaysia Airlines,“ sögðu framleiðendurnir í yfirlýsingu. „Ju Kun var mikilvægur hluti af teyminu okkar og mikill hæfileikamaður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×