Erlent

Barnaníðings leitað í tengslum við hvarf Madeleine McCann

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Móðir McCann á blaðamannafundi árið 2011.
Móðir McCann á blaðamannafundi árið 2011. vísir/afp
Rannsóknarlögreglumenn í máli Madeleine McCann leita nú að manni sem misnotaði börn í sumarhúsum í Portúgal

Tólf kynferðisbrot sem framin voru á árunum 2004 til 2010 eru til rannsóknar, þar sem karlmaður braust inn í sumarhús sem breskar fjölskyldur höfðu á leigu á Algarve-svæðinu.

Í fjórum tilfellum var ráðist kynferðislega á alls fimm stúlkur á aldrinum sjö til níu ára þar sem þær lágu í rúmum sínum.

Árásirnar eru ekki sagðar vera eins, en líkindin þykja nægilega mikil til þess að lögregla vonast til þess að árásarmaðurinn geti varpað ljósi á hvarf McCann. Hún hvarf sporlaust í maí árið 2007 í ferðamannabænum Praia da Luz.


Tengdar fréttir

Ekkert bendir til sektar McCann hjónanna

Fyrrverandi lögreglustjóri Lundúnaborgar segir í blaðagrein í dag að enginn möguleiki væri á því í Bretlandi að MacCann hjónin yrðu ákærð fyrir að hafa orðið dóttur sinni Madeleine að bana.

Maður og kona handtekin á Spáni í tengslum við hvarf Madeleine

Spænska lögreglan handtók í morgun ítalskan mann og portúgalska konu sem grunur leikur á að tengist á ráninu á bresku stúlkunni Madeleine McCann. Madeleine hvarf af hótelherbergi á sumardvalarstaðnum Praia da Luz í Portúgal í byrjun maí.

50 milljónir hafa heimsótt vefsíðu Madeleine

Vefsíða sem sett var á laggirnar til að hjálpa við leitina á Madeleine McCann hefur fengið meira en 50 milljónir heimsókna. Fjölþjóðleg fyrirtæki á borð við BP, McDonalds og alþjóðlega matvöruverslunarkeðjan Carrefour styðja leitina með því að dreyfa myndum í Evrópu af stúlkunni. Maddie var rænt í Portúgal 3. Maí síðastliðinn og varð fjögurra ára í síðustu viku.

Ótrúleg viðbrögð í kjölfar þáttar um Madeleine

Breskir rannsóknarlögreglumenn sem rannsaka hvarf ensku telpunnar Madeleine McCann segja að þeir hafi fengið yfir 2400 símtöl og tölvupósta í kjölfar þess að sýndur var þáttur á BBC sem skýrði nákvæmlega frá hvarfi M adeleine.

Leit gerð á heimili McCann hjónanna

Portúgalskur dómari sem fer með mál Madeleine McCann hefur farið þess á leit við bresk lögregluyfirvöld að þau fari á heimili foreldra hennar í Leicestershire til þess að leita að sönnunargögnum í málinu. Fréttastofa Sky greinir frá því að líklegast fari leitin fram í dag.

Vilja handtaka þrjá vegna hvarfs Madeleine

Breska lögreglan hefur sent starfsbræðrum sínum í Portúgal formlega beiðni um að þrír menn verði handteknir í tengslum við hvarf Madeleine McCann. Madeleine hvarf úr hótelherbergi foreldra sinna á Algarve í Portúgal árið 2007, þá þriggja ára að aldri.

Fylltist þunglyndi og sjálfsvígshugsunum vegna Maddie

Kate McCann segist hafa fyllst þunglyndi og sjálfsvígshugsunum eftir að dóttur hennar, Madeleine McCann, var rænt af hótelherbergi í Portúgal. Fjögur ár eru síðan að Maddie litlu, eins og hún var kölluð, var rænt og enn er ekkert vitað um afdrif hennar. Kate McCann hefur nú gefið út bók um hvarfið. Þar lýsir hún meðal annars tilfinningum sínum þegar að rannsókn málsins fór af stað. Hún segir að það hafi valdið sér sársauka að hafa verið álitin vera köld og tilfinningalaus manneskja, vegna þess hvernig hún kom fyrir í viðtölum við fjölmiðla.

Síðasta myndin af Madeleine birt

Fjölskylda Madeleine McCann hefur birt síðustu myndina sem tekin var af telpunni áður en hún hvarf í Portúgal. Á henni er Maddie brosandi og að dingla fótunum ofan í sundlaug með föður sínum og Sean, yngri bróður. Kate McCann móðir stúlkunnar tók myndina daginn sem henni var rænt.

Interpol rannsakar nú hvarf stúlku í Portúgal

Kate McCann, móðir Madeleine litlu, þriggja ára stelpunnar, sem rænt var í Portúgal í fimmtudagskvöld, grátbað í dag ræningja hennar að meiða hana ekki eða hræða. Hún bað þá sem rændu henni að láta vita hvar hægt væri að finna hana. Á blaðamannafundi portúgölsku lögreglunnar í kvöld kom fram að Alþjóðalögreglan Interpol tæki nú þátt í rannsókn málsins og allt gert til að finna stúlkuna.

Þriggja ára bresk stúlka numin á brott á Portúgal

Ekkert hefur spurst til þriggja ára breskrar stúlku sem talið er að numin hafi verið á brott úr herbergi á Portúgal þar sem hún svaf ásamt tveimur systkinum sínum. Stúlkan var ásamt foreldrum sínum í sumarfríi á Algarve.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×