Bíó og sjónvarp

Óskarsverðlaunin 2014: Allir sigurvegararnir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Verðlaunaleikararnir (frá vinstri): Matthew McConaughey, Lupita Nyong'o, Jared Leto og Cate Blanchett.
Verðlaunaleikararnir (frá vinstri): Matthew McConaughey, Lupita Nyong'o, Jared Leto og Cate Blanchett. vísir/getty
Það var mynd leikstjórans Steves McQueen, 12 Years a Slave, sem var valin besta kvikmyndin á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt.

Myndin hlaut þrenn verðlaun en flest verðlaun fóru til vísindaskáldsögunnar Gravity, en aðstandendur hennar fóru heim með heilar sjö styttur.

Það var leikkonan Cate Blanchett sem var valin besta leikkona í aðalhlutverki fyrir myndina Blue Jasmine en Matthew McConaughey var valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í Dallas Buyers Club

Í aukahlutverkum voru það þau Jared Leto úr Dallas Buyers Club og leikkonan Lupita Nyong'o sem þóttu best.

Leto hélt langa þakkarræðu og talaði meðal annars mikið um móður sína.

„Árið 1971 var unglingsstúlka í Louisiana ólétt af sínu öðru barni. Hún hafði hætt í skóla og var einstæð móðir. Einhvern veginn náði hún að skapa sér og börnum sínum betra líf. Sú stúlka er móðir mín og hún er hér í kvöld. Ég vil bara segja: „Ég elska þig mamma og takk fyrir að kenna mér að dreyma,“ sagði leikarinn meðal annars þegar hann tók við verðlaununum. Þá þakkaði hann líka bróður sínum og minntist á hrikalegt ástand í Úkraínu og Venesúela. „Við hugsum til ykkar í kvöld.“

Nyong'o táraðist í miðri ræðu.vísir/getty
Nyong'o var greinilega brugðið og fór að gráta í miðri þakkarræðu.

„Já! Ég veit að mikil gleði í mínu lífi er sprottin úr sársauka annarra,“ sagði hún og þakkaði meðal annars meðleikara sínum Michael Fassbender. „Þú ert kletturinn minn.“

Hún lauk síðan ræðunni á þessum orðum:

„Þegar ég lít á þessa gylltu styttu minnir hún mig á að draumar eru gildir, sama hvaðan maður er.“

Ástralski búningahönnuðurinn Catherine Norris hlaut verðlaun fyrir bestu búningana fyrir The Great Gatsby. Hún er eiginkona leikstjórans Baz Luhrmann og þakkaði honum í ræðunni. Kvikmyndin hlaut einnig verðlaun fyrir leikmyndahönnun. Þá var förðun og hár í kvikmyndinni Dallas Buyers Club verðlaunað.

Verðlaun fyrir bestu teiknuðu stuttmynd hlaut Mr. Hublot. Besta teiknimyndin í fullri lengd var hins vegar Frozen. Lagið Let It Go, eftir Kristen Anderson-Lopez og Robert Lopez, úr Frozen var valið besta lagið.

Það var sprelligosinn Ellen DeGeneres sem var aðalkynnir hátíðarinnar.vísir/getty
Gravity, í leikstjórn Alfonso Cuarón, var verðlaunuð fyrir bestu tæknibrellurnar.

Helium var valin besta stuttmyndin. Besta heimildarstuttmyndin var hins vegar The Lady in Number 6: Music Saved My Life. Besta heimildarmyndin var 20 Feet From Stardom.

The Great Beauty frá Ítalíu hlaut verðlaun sem besta erlenda myndin.

Kvikmyndin Gravity fékk verðlaun fyrir bæði bestu hljóðblöndun og bestu hljóðklippingu.

DeGeneres tísti þessari hópmynd af helstu stjörnunum á Twitter og fór vefurinn á hliðina um stund, svo vinsæl var myndin.mynd/twitter
Emmanuel Lubezk hreppti verðlaunin fyrir kvikmyndatökuna í Gravity. Þá hlutu Mark Sanger og Alfonso Cuarón verðlaun fyrir klippingu myndarinnar en sá síðarnefndi leikstýrði henni einnig. Þá var Steven Price verðlaunaður fyrir tónlistina í myndinni.

John Ridley var verðlaunaður fyrir handrit myndarinnar 12 Years a Slave. Þá fékk Spike Jonze verðlaun fyrir besta frumsamda handritið fyrir kvikmynda Her sem hann leikstýrði einnig.

Alfonso Cuarón var valinn besti leikstjórinn fyrir myndina Gravity.vísir/getty
Alfonso Cuarón var valinn leikstjóri ársins fyrir kvikmyndina Gravity. Í þakkarræðu sinni sagði hann að ferli kvikmyndarinnar hafi breytt ýmsu í sínu lífi, þó helst háralit sínum og vísaði í gráa hárið.

Þá þakkaði hann fjölda fólks, þar á meðal Söndru Bullock sem fór með aðalhlutverkið í myndinni.

„Sandy, þú ert Gravity. Þú ert sála og hjarta myndarinnar. Þú ert ein besta manneskja sem ég hef hitt.“

Cate Blanchett fékk verðlaun fyrir hlutverk sitt í Blue Jasmine.vísir/getty
Cate Blanchett var valin besta leikkonan fyrir frammistöðu sína í Blue Jasmine. Hún byrjaði þakkarræðu sína á því að skipa fólki að setjast.

„Setjist! Þið eruð of gömul til að standa!“

Þá þakkaði hún leikstjóra myndarinnar Woody Allen.

„Takk fyrir að ráða mig Woody. Ég met það mikils,“ sagði Cate og rómaði síðan hinar leikkonurnar sem tilnefndar voru í flokknum - Amy Adams, Söndru Bullock, Meryl Streep og Judi Dench.

Matthew McConaughey fékk verðlaun fyrir hlutverk sitt í Dallas Buyers Club.vísir/getty
Matthew McConaughey var valinn besti leikarinn fyrir Dallas Buyers Club. Hann sagðist þurfa þrennt á hverjum degi - einhvern til að líta upp til, einhvers til að hlakka til og einhvern til að elta.

„Ég vil þakka Guði. Ég lít upp til hans. Hann hefur gefið mér tækifæri og sýnt mér að það er vísindaleg staðreynd að þakklæti er endurgoldið. Ég vil þakka fjölskyldunni minni, ég hlakka til hennar. Ég vil þakka hetjunnar minnar sem ég elti. Það er ég eftir tíu ár. Ég verð aldrei hetja, ég veit það. Ég er sáttur við það, þá hef ég einhvern til að elta.“

Steve McQueen (t.v.), leikstjóri 12 Years a Slave, og Brad Pitt, framleiðandi myndarinnar.vísir/getty
Öll verðlaunin:

Besta kvikmynd

12 Years a Slave

Besta leikkona í aðalhlutverki

Cate Blanchett (Blue Jasmine)

Besti leikari í aðalhlutverki

Matthew McConaughey (Dallas Buyers Club)

Besta leikkona í aukahlutverki

Lupita Nyong'o (12 Years a Slave)

Besti leikari í aukahlutverki

Jared Leto (Dallas Buyers Club)

Besti leikstjóri

Alfonso Cuarón (Gravity)

Besta frumsamda handrit

Her (Spike Jonze)

Besta handrit byggt á áður útgefnu efni

12 Years a Slave (John Ridley)

Besta lag

Let it Go (Frozen)

Besta kvikmyndatónlist

Steven Price (Gravity)

Besta listræna stjórnun

The Great Gatsby

Besta klipping

Gravity

Besta kvikmyndataka

Gravity

Besta hljóðklipping

Gravity

Besta hljóðblöndun

Gravity

Besta erlenda kvikmynd

La grande bellezza (Ítalía)

Besta heimildarmynd í fullri lengd

Twenty Feet from Stardom

Besta stutta heimildarmynd

The Lady In Number 6

Besta leikna stuttmynd

Helium

Besta stutta teiknimynd

Mr Hublot

Besta teiknimynd í fullri lengd

Frozen

Bestu tæknibrellur

Gravity

Besta hár og förðun

Dallas Buyers Club

Besta búningahönnun

The Great Gatsby

 

Tengdar fréttir

Hámaði í sig pítsu

Leikarinn Brad Pitt fékk sér hressingu á Óskarsverðlaunahátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×