Lífið

Konungur fótóbombanna

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Leikarinn Jared Leto fótóbombaði Anne Hathaway á rauða dreglinum í Vanity Fair-Óskarspartíinu eftir Óskarsverðlaunahátíðina í gær.

Anne sá Jared ekki og stillti sér því pent upp í fallegum kjól frá Viktor & Rolf. Á endanum tók hún samt eftir sprelligosanum og hlógu þau dátt að þessu athæfi Jareds.

Jared, sem hlaut verðlaun fyrir leik sinn í Dallas Buyers Club, var líka í fótóbombstuði á sjálfum Óskarnum og fótóbombaði fyrirsætuna Ireland Baldwin, leikarann Kevin Spacey og sjónvarpskonuna Nancy O'Dell.

Flipphaus með styttu.
Mikið hlegið.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×