Lífið

"Bindum enda á sögusagnirnar - við erum að deita"

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Jared Leto, 42 ára, fór á kostum á rauða dreglinum á Óskarsverðlaunahátíðinni þegar hann fór í viðtal við Ryan Seacrest með leikkonunni June Squibb, 84 ára.

Jared truflaði viðtal Ryans við June í þann mund sem hún var að segja honum frá græna Tadashi Shoji-kjólnum sínum. Sagðist Jared hafa fallið fyrir leikkonunni.

"Bindum enda á sögusagnirnar - við erum að deita og það er frábært. Ég skemmti mér og vonandi gerir hún það líka," sagði Jared sem hitti June á kvikmyndahátíðinni í Santa Barbara fyrir skemmstu.

"Kvöldið okkar í Santa Barbara var frábært," sagði June í gamansömum tón.

Jared er tilnefndur í kvöld sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Dallas Buyers Club og þykir afar sigurstranglegur. June er tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir Nebraska.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×