Sprengjuhótun: Íslensk kona og Schröder á hótelinu Stefán Árni Pálsson skrifar 13. maí 2014 10:30 Hér má sjá gesti hótelsins fyrir utan það í gærkvöldi. „
Það kom inn sprengjuhótun um klukkan hálf átta í gærkvöldi og rýma þurfti hótelið samstundis,“ segir íslensk kona, sem er gestur á Schloss-hótelinu í Kronberg í Þýskalandi. Blása varð af afmælisveislu Gerhard Schröder, fyrrum kanslara Þýskalands, í gær eftir að sprengjuhótun barst á hótelið þar sem veislan var fyrirhuguð. „Við máttum ekki taka með okkur nokkurn skapaðan hlut og hér var mikill öryggisviðbúnaður. Töluverður fjöldi lögreglumanna stóð að leitinni ásamt leitarhundum. Menn tóku þessu mjög alvarlega hér og voru allir gestir hótelsins fluttir á annað hótel í grenndinni.“ Veislan átti að fara fram á þakinu á hótelinu en Schröder varð 70 ára 7. apríl. „Þetta var afmælishóf sem Rothschild-bankinn ætlaði að halda til heiðurs Schröder og voru hér miklir heiðursmenn á hótelinu. Schröder hefur verið að vinna sem sérstakur ráðgjafi fyrir bankann.“ Meðal gesta í afmælisveislunni var rússneski sendiherrann í Þýskalandi Vladimir Grinin, Jürgen Fitschen, forstjóri Deutsche Bank og Hartmut Mehdorn, framkvæmdarstjóri flugvallarins Berlin Brandenburg. Einnig voru háttsettir starfsmenn hjá Rothschild-bankanum.„Til að byrja með trúði ég þessu ekki og hélt að þetta væri æfing, en fljótlega áttaði maður sig á því að þetta var alls ekki æfing. Þegar ég var komin fyrir utan hótelið sá ég Schröder og alla þá gesti sem voru á hans vegum.“ Mikið hefur verið fjallað um Schröder í þýskum fjölmiðlum að undanförnu og þá sérstaklega eftir að hann hélt upp á afmælið sitt í St. Pétursborg ásamt Vladimir Pútin, forseta Rússlands.Mynd af þeim tveimur saman hefur vakið hörð viðbrögð í Þýskalandi en á myndinni sést þegar Schröder faðmar Pútín. Þýskir fjölmiðlar fjalla í dag um málið og telja þeir að rekja megi sprengjuhótunina í gær til vináttu Pútíns og Schröder.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira