Verkið kallar á mann að láta flytja sig 5. september 2013 12:00 Guðrún Dalía Salómonsdóttir og Júlía Mogensen, tvær af meðlimum kvartettsins. Fréttablaðið/GVA „
Hópurinn heitir KÚBUS, eins og teningur, og við erum fyrstu fjögur hornin. En ætlunin er að hafa hópinn breytilegan að stærð og lögun og vinna með listamönnum úr öðrum listgreinum,“ segir Guðrún Dalía Salómonsdóttir, píanóleikari og einn meðlima kvartettsins KÚBUS. Auk Guðrúnar samanstendur kvartettinn af Ingridi Karlsdóttur fiðluleikara, Grími Helgasyni klarínettuleikara og Júlíu Mogensen sellóleikara, en þau munu flytja verkið Kvartett um endalok tímans eftir franska tónskáldið OlivierMessiaen í Tjarnarbíói næstkomandi laugardag. Þau Guðrún Dalía, Júlía og Grímur tóku sér frí frá æfingum og ræddu við blaðamann um verkið, sem þau segja að hafi kallað á flutning þeirra. „Markmið hópsins er að fá nýja áhorfendur og einnig að gera tilraunir með uppsetningar og samsetningar á tónlist og öðrum listgreinum og taka áhættu,“ segir Júlía. Þetta eru fyrstu tónleikar hópsins, sem var formlega stofnaður í vor. „Við völdum Tjarnarbíó fyrir flutninginn, sem er frekar óhefðbundinn staður fyrir klassíska tónleika. Við vildum vera í leikhúsi og setja þetta í pínulítinn leikhúsbúning og þannig brjóta upp þetta hefðbunda tónleikaform.“Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari og Júlia Mogensen sellóleikari er í kvartettinum KÚBUS. Fréttablaðið/GVASpurður hvers vegna þetta verk hafi orðið fyrir valinu segir Grímur hópinn lengi hafa haft áhuga á að takast á við tónsmíðina. „Þetta er reyndar mjög mikið spilað verk enda 20. aldar klassík. En þetta er það gott og fjölbreytilegt verk að það eru örlög þess að vera oft flutt. Það hreinlega kallar á mann að láta flytja sig.“ Þau segja verkið ekki einungis ná til þeirra sem hlusta á og þekkja klassíska tónlist. „Verkið nær til breiðs hóps og ég held að það nái fólki hvort sem það hlustar á klassíska tónlist eða ekki. Það er svo áhrifamikið að þú þarft ekki að vita neitt um tónlist eða einu sinni hafa það mikinn áhuga á henni til þess að verða gagntekin,“ segir Guðrún Dalía. Saga tónskáldsins og verksins er dramatísk, en Messiaen samdi verkið í haldi nasista í fangabúðum í Görlitz. Innan þeirra veggja var kvartettinn frumfluttur í janúar 1941, þar sem bæði flytjendur og áheyrendur voru í haldi. Tónleikarnir eru styrktir af Tónleikasjóði og verða sem áður segir í Tjarnabíói laugardaginn 7. september og hefjast klukkan 22.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Patrick Stewart látinn Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira