Arsenal í riðlakeppni Meistaradeildarinnar sextánda árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2013 20:35 Aaron Ramsey fagnar í kvöld. Mynd/NordicPhotos/Getty
Strákarnir hans Arsene Wenger í Arsenal áttu ekki í miklum vandræðum með því að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Arsenal vann þá 2-0 sigur á tyrkneska liðinu Fenerbahce á Emirates en Lundúnaliðið var með 3-0 forskot frá því í fyrri leiknum. Þetta er í sextánda árið í röð sem Arsenal verður með í pottinum þegar dregið verður í riðla í Meistaradeildinni en Arsenal hefur verið með allt frá því tímabilið 1997-98 þegar liðið var í UEFA-bikarnum. Sigur Arsenal-manna var öruggur en þeir fara áfram 5-0 samanlagt. Velski landsliðsmaðurinn Aaron Ramsey skoraði bæði mörk liðsins í kvöld en hann er heldur betur að springa út á þessu tímabili. Aaron Ramsey kom Arsenal í 1-0 á 25. mínútu þegar boltinn barst til hans eftir samspil Theo Walcott og Lukas Podolski í teignum. Það tók því ekki Arsenal-menn langan tíma að eyða lítilli von gestanna frá Tyrklandi. Theo Walcott átti meðal annars skot í slá úr aukaspyrnu í seinni hálfleiknum en Aaron Ramsey bætti síðan við öðru marki á 72. mínútu með frábæru skoti eftir fyrirgjöf frá Kieran Gibbs. Ramsey skoraði þar með 3 mörk í þessum tveimur leikjum á móti tyrkneska liðinu.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira