"Ég hef alltaf reynt að vera sem mest í húsinu mínu á Snæfellsnesinu þegar ég er að skrifa en þar fæ ég svo mikinn innblástur,“ segir Snæfríður Ingadóttir blaðamaður sem nýlega gaf út bókina The Icelandic Woman ásamt Þorvaldi Erni Kristmundssyni.
Þetta er fimmta bókin sem þau vinna saman, en fyrri bækur þeirra eru meðal annars 50 crazy romantic things to do in Iceland og 50 crazy things to taste in Iceland. „Við Þorvaldur höfum verið að skrifa bækur fyrir ferðamenn og efnið í þessa bók var valið með það í huga að úr verði áhugaverð lesning fyrir ferðamenn.“

„Við erum með margar konur í háttsettum stöðum en samt sem áður vantar svo mikið upp á jafnréttisbarráttuna. Mér fannst það vera það sem stóð einna helst upp úr við gerð þessarar bókar.“
Aðspurð hvernig hin raunverulega íslenska kona sé segir Snæfríður að dæmigert sé að íslenskar konur vinni mest allra kvenna í Evrópu, eignist samt sem áður flest börn og séu mjög langlífar, sem á alls ekki við um konur annarra landa.