Norski loðnuskipstjórinn sleppur með lága sekt Svavar Hávarðsson skrifar 1. febrúar 2013 06:00 Norðmenn eiga átta prósent af um 300 þúsund tonna útgefnum loðnukvóta. fréttablaðið/óskar
Afli norska loðnuskipsins Manon reyndist töluvert meiri en skipstjóri hafði tilkynnt um að veitt hefði verið innan íslensku efnahagslögsögunnar. Dómsátt var gerð í málinu eftir rannsókn lögreglunnar á Eskifirði. Landhelgisgæslan telur ekki ástæðu til að halda að brot sem þessi séu algeng. Víðtækt eftirlit er á miðunum. Varðskipið Týr vísaði fyrir rúmri viku norska loðnuskipinu Manon til hafnar á Eskifirði fyrir meintar ólöglegar veiðar eftir að varðskipsmenn fóru um borð til eftirlits. Mælingar varðskipsmanna leiddu í ljós að afli um borð virtist meiri en skipið hafði tilkynnt um að það hefði veitt innan íslensku efnahagslögsögunnar og fylgdi Týr skipinu til hafnar eftir að samráð var haft við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Ásgrímur Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir að tæplega 800 tonnum hafi verið landað úr Manon, en skipstjórinn tilkynnti að 600 tonna loðnuafli væri um borð. Ásgrímur segist ekki hafa ástæðu til að halda að brot sem þessi séu algeng, á síðustu loðnuvertíð hafi Landhelgisgæslan til dæmis farið um borð í tuttugu erlend skip án þess að dæmi sem þetta kæmi upp. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að lögregluyfirvöld eystra hafi ekki farið fram á eignaupptöku vegna málsins, en ekki er óalgengt að afli og veiðarfæri séu gerð upptæk ef menn eru staðnir að brotum sem þessum. Umfang brotsins er þá haft til hliðsjónar. Skipstjórinn á Manon mun hafa gengist undir svokallaða viðurlagaákvörðun, sem er í raun dómsátt, og greiðir 400 þúsund krónur í Landhelgissjóð Íslands. Eftirlitið á miðunum er víðtækt á meðan á vertíðinni stendur. Varðskip er á svæðinu sem fylgir flotanum eftir og áhöfn þess fer til eftirlits um borð í skipin. „Veður hamlar þessu eftirliti vissulega stundum en skipunum er gert að koma við á fyrir fram tilgreindum eftirlitsstað á miðunum áður en þau halda heim. Um borð eru gögn er varða veiðarnar yfirfarin og athugað hvort rétt hefur verið staðið að öllu," segir Ásgrímur. Áður en bræla skall á fyrir helgi voru 22 erlend loðnuskip á miðunum; norsk skip að viðbættu einu grænlensku. Fá íslensk skip hafa haldið til veiða eftir bræluna, en margar útgerðir halda að sér höndum þar sem mjög gengur á kvótann. Ætla menn að nýta síðustu tonnin þegar hrognafylling loðnunnar eykst og þar með verðmætið. Hafrannsóknastofnun leitar nú loðnu norður af landinu.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira