Neyðarmóttaka vegna nauðgana ekki í símaskránni 19. janúar 2013 11:13 Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint. „
Neyðarmóttaka vegna nauðgana er ekki í símaskránni undir ja.is. Konum þarf sjálfum að detta í hug að hringja á Landspítalann til þess að leita hana uppi. Ef konur hafa kjark til þess að fara á Bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi er hvergi sjáanlega merkt að sá staður sé fyrir konur sem leita hjálpar vegna nauðgunar. Konur þurfa að ganga að glerbúrinu fyrir framan alla þá sem bíða eftir lækni og tilkynna að þær þurfi hjálp vegna nauðgunar. Þetta aðgengi er óviðunandi." Svona skrifar Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, í grein sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi í dag. Í greininni, sem ber heitið „Áskorun til velferðarráðherra", bendir Guðrún á að aðbúnaður Neyðarmóttöku nauðgana hafi versnað verulega undanfarin ár, svo mikið að konur geta ekki einu sinni fundið símanúmerið á deildinni með einföldum hætti. Guðrún tekur þó sérstaklega fram að það sé ekki við starfsfólkið að sakast. „Eyrún Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnisstýra á Neyðarmóttöku, hefur verið vakin og sofin yfir þjónustunni, en það er bara ekki nóg," skrifar Guðrún. Í greininni bendir Guðrún einnig á að fórnarlömbum nauðgana, sem leituðu á neyðarmóttökuna, hafi verið mætt af sérþjálfuðu teymi sem samanstóð af hjúkrunarfræðingi, lækni, félagsráðgjafa, lögreglu og lögmanni. Nú er öldin önnur. Nú er ekki einu sinni yfirlæknir á deildinni. Guðrún skrifar: „Það er enginn yfirlæknir lengur, félagsráðgjöfunum var kippt út úr teyminu, en konum býðst að hitta sálfræðing síðar. Sérþjálfuðu og reyndu hjúkrunarfræðingarnir sem voru í nauðgunarteyminu eru nú bráðadeildarhjúkrunarfræðingarnir sem hlaupa í nauðgunarmálin á milli annarra bráðaverka." Hægt er að lesa grein Guðrúnar hér fyrir neðan. Athugasemd frá ja.is: Þegar Landspítalanum er slegið inn á ja.is þá má finna símanúmer neyðarmóttökunnar vegna nauðgunar í undirflokki. Þar er hægt að sjá hér. Aftur á móti kemur ekki neitt upp ef sérstaklega er leitað eftir nafni neyðarmóttökunnar. Slá þarf inn leitarorðið Landspítali til þess að finna númerið í undirflokknum.
Tengdar fréttir Áskorun til velferðarráðherra Ágæti velferðarráðherra. Á Stígamótum erum við mjög meðvitaðar um að kjörtímabilinu er að ljúka og enginn veit hver tekur við lyklavöldum í velferðarráðuneytinu í sumar. 19. janúar 2013 06:00 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira
Áskorun til velferðarráðherra Ágæti velferðarráðherra. Á Stígamótum erum við mjög meðvitaðar um að kjörtímabilinu er að ljúka og enginn veit hver tekur við lyklavöldum í velferðarráðuneytinu í sumar. 19. janúar 2013 06:00