Fótbolti

Mælir með góðum þríleik fyrir þá sem eiga erfitt með að festa svefn

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
„Maður er það spenntur fyrir þessum leik að það er ekkert að fara að stoppa mann núna,“ segir Alfreð Finnbogason. Framherjinn segir menn vera í góðu standi eftir leikinn á föstudag og hann horfir spenntur til leiksins annað kvöld.

Viðbúið er að Alfreð muni spila í fremstu víglínu með Eiði Smára Guðjohnsen sem hann kynni vel að meta.

„Við náðum bara tíu til fimmtán mínútum saman í síðasta leik en hann var strax byrjaður að þræða inn á mig sendingar. Það var draumur fyrir mig fyrir ekki margt löngu að vera í framlínunni með Eiði Smára. Nú er bara að njóta þess og gera sem mest úr því ef svo verður raunin,“ segir Alfreð. Hann segir heimsmeistaramótið í Brasilíu vissulega hafa verið draum fyrir ekki margt löngu. Nú sé þetta raunveruleikinn.

Mynd/Skjáskot
„Við erum komnir hingað, höfum unnið fyrir því og það er engin heppni á bak við það. Nú fer þetta eftir okkar frammistöðu á þriðjudaginn hvort við munum fagna eða gráta,“ segir Alfreð. Greinilegt er að viljinn og sjálfstraustið er fyrir hendi hjá okkar manni.

„Við vitum alveg hvað þjóðin okkar vill og við þurfum að skila sömu vinnu og á föstudaginn og bæta í sóknarþungann því við þurfum að skora til að fara áfram. Þetta verður þraut en það eru það sterkir karakterar og sigurvegarar í þessu liði að ég er hóflega bjartsýnn að við séum á leiðinni til Brasilíu.“

Alfreð er meðvitaður um spennuna í landanum fyrir möguleikanum að komast á HM í Brasilíu. Hann er með góð ráð fyrir þá sem eiga erfitt með að festa svefn í aðdraganda leiksins. Framherjinn mælir með góðum þríleik eins og hann útskýrir í lok myndbandsins hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×